Skaut á Taylor Swift og sagði konum að halda sig í eldhúsinu Valur Páll Eiríksson skrifar 15. maí 2024 10:30 Butker flutti galna ræðu sem hefur vakið mikið, og neikvætt, umtal. Getty Harrison Butker, sparkari í liði Kansas City Chiefs í NFL-deildinni, sætir mikilli gagnrýni eftir ræðu sem hann hélt við útskrift nemenda út háskóla í Kansas-fylki á dögunum. Þar lét hann gamminn geysa allhressilega um hlutverk kynjanna, meðal annars.
Butker er á meðal bestu sparkara í NFL-deildinni og hefur raðað inn titlum með sterku liði Kansas City undanfarin ár, síðast í febrúar síðastliðnum þegar félagið vann Ofurskálina. Enginn efast um hæfileika hans innan vallarins en utan hans er Butker umdeildari. Það voru ekki aðeins hlutverk kynjanna sem Butker tjáði sig um í ræðu sem hann hélt við útskriftarathöfn Benedictine-háskóla í Atchison í Kansas. Eftir umdeild ummæli um fóstureyðingar, Covid-faraldurinn og Joe Biden, Bandaríkjaforseta, meðal annars, sneri Butker sér að konunum í salnum. Hann byrjaði á því að skjóta á söngkonuna Taylor Swift, kærustu Travis Kelce, er hann vitnaði í textabút hennar og kallaði hana „kærustu liðsfélaga“. TRENDING: Thousand of social media users, including ‘Swifties’ are calling for #Chiefs kicker Harrison Butker to be “BANNED FROM THE #NFL, like Colin Kaepernick”He is being called “misogynistic, homophobic, & transphobic” after this speech at graduation pic.twitter.com/3QZgRtAObg— MLFootball (@_MLFootball) May 15, 2024 „Það eruð þið, konurnar, sem eruð mataðar af verstu lygunum. Sumar ykkar gætu átt farsælan feril en ég þykist vita það að meirihluti ykkar séu spenntastar fyrir hjónabandinu og börnunum sem þið munuð fæða í heiminn,“ sagði Butker sem lýsti því að hann gæti ekki sinnt lífi sínu og ferli án þess að eiga konu sem sinnir heimilinu. „Það er ekki hægt að ofmeta það að allur árangur minn er mögulegur vegna þess að stúlka sem ég hitti í grunnskóla snerist til trúar, verða konan mín og taka fagnandi við einum mikilvægasta titli allra: Húsmóðir.“ Harrison Butker doesn’t represent Kansas City nor has he ever. Kansas City has always been a place that welcomes, affirms, and embraces our LGBTQ+ community members. 🌈 pic.twitter.com/4vZ14SXgb6— Justice Horn (@JusticeHorn_) May 14, 2024 Ummælin féllu eðlilega misvel í kramið, þó að einhver hluti fólks við Benedictine-háskóla hafi tekið þeim fagnandi. Enda um að ræða skóla sem neyddi samkynhneigða körfuboltamanninn Jallen Messersmith til að fjarlægja regnbogafána úr herbergi sínu á heimavistinni. Butker átti nefnilega eftir að snúa sér að fjölbreytileika og baráttu hinsegin fólks. „Heimurinn í kringum okkur segir að við eigum að halda trú okkar fyrir okkur sjálf þegar sú trú gengur gegn harðstjórn fjölbreytileikans, jöfnuðar og innsömun,“ sagði Butker sem snerti því næst á hættulegri hugmyndafræði sem fylgdi baráttu hinsegin fólks og Pride-mánaðar sem er í júní. Hann sagði Pride-mánuð í Bandaríkjunum vera á meðal „dauðasyndanna“. Eina sanna stoltið fælist því að „fylgja Guði og hylla hann“. Ræðan og hlutar úr henni hafa farið sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum og óhætt að segja að viðbrögðin séu víðast hvar neikvæð. Butker er sakaður um karlrembu og fordóma gegn hinsegin fólki. Fjölmargir hafa kallað eftir því að honum verði vísað úr NFL-deildinni vegna smánarlegra ummæla hans. Justice Horn, fyrrum borgarfulltrúi í Kansas-borg, segir Butker ekki vera fulltrúa borgarinnar og gildanna sem þar eru við lýði. Harrison Butker telling women at their COLLEGE GRADUATION that they’ve been lied to & they’ll be more fulfilled as homemakers is……. something. The ACTUAL audacity some of yall have is truly insane. 🫠— Laci Michele (@HookEmLacixoxo) May 14, 2024 I would pay money to see Harrison Butker quote Taylor Swift and then explain how she’s emasculating Travis Kelce TO HIS FACE.— LL (@LaLovestheTide) May 14, 2024
NFL Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira