Réttlætingar og lygar Ísraels Yousef Tamimi skrifar 14. maí 2024 08:00 Það er sorglegt að fylgjast með því hversu langt íslensk stjórnvöld leyfa Ísrael að draga sig á asnaeyrunum. Ísrael fjöldaframleiðir lygar til að réttlæta árásir sínar á innviði Gaza og Ísland hefur hingað til tekið orð Ísraels undantekningarlaust sem sannleika og án neinnar gagnrýnnar hugsunar. Pólitíska elítan á Íslandi hefur tekið afstöðu með Ísrael og þjóðarmorði í Palestínu en á sama tíma hunsað algjörlega óskir alþjóðasamfélagsins um varanlegt vopnahlé og tækifæri fyrir Palestínu að dafna sem frjálst og fullvalda ríki. Síðustu mánuði hefur raunar hver einasta staðhæfing og réttlætingar Ísraels varðandi þjóðernishreinsanir þeirra á Gaza reynst ósannar. Ein stærsta lygi Ísraels eru ásakanir um að starfsmenn UNRWA hafi tekið virkan þátt í árásum á Ísrael. Ísrael hefur lengi haft horn í síðu UNRWA en segja má að UNRWA sé hryggjarstykki innviða Palestínu. UNRWA hefur sinnt hlutverki sem að í eðlilegum aðstæðum ríkið sjálft myndi sjá um en vegna hernáms Ísraels hefur Palestína ekki fengið að móta og þróa þau innviði sem nauðsynleg eru. UNRWA hefur því sinnt þessum grundvallar hlutverkum og séð til þess að palestínska þjóðin fái viðeigandi menntun, heilbrigðis- og félagsþjónustu ásamt því að tryggja fæðuöryggi. Það sem gerir UNRWA einstakt er að stærsti hluti starfsfólks eru innfæddir Palestínumenn sem gerir það að verkum að gríðarleg þekking og reynsla hefur myndast í gegnum árin í Palestínu. Við frjálsa Palestínu er því líklegt að starfsemi UNRWA leggist niður í núverandi mynd og að einhverju leyti sameinist Palestínska ríkinu.Þetta eiga Ísraelsk stjórnvöld mjög erfitt með en markmið Ísrael er að koma í veg fyrir að Palestína þróist og þroskist sem þjóð. Skýrasta dæmið er höfnun Ísraels á tilvist Palestínu og sjálfstæði þrátt fyrir viðurkenningu Palestínu á Ísrael fyrir 35 árum. Það er því mikilvægt markmið fyrir Ísrael að losna við UNRWA og tryggja að Palestína verði algjörlega háð utanaðkomandi aðstoð, t.d. World Food Kitchen, sem kemur í veg fyrir að reynsla og þekking myndist og haldist í Palestínu. Ásakanir Ísraels snúast um að 12 starfsmenn UNRWA (0.1%) áttu að hafa tekið virkan þátt í árásum 7 október. Hins vegar þegar Colonnaskýrslan var gefin út í lok apríl kom í ljós að þrátt fyrir ítrekaðar óskir Sameinuðu Þjóðanna þá hefur Ísrael aldrei getað framvísað neinum sönnunargögnum fyrir þessum staðhæfingum og standast því þessar ásakanir enga skoðun. Líklegt þykir að Ísrael hafi pyntað palestínska starfsmenn UNRWA til að fá fram falskar játningar. Það var á grundvelli þessara ákvarðanna sem Ísland ákvað að frysta greiðslur til UNRWA og stefna þar með milljónum Palestínumanna í hættu. Ísland sat þannig ekki bara hjá, heldur tók beinharða afstöðu með Ísrael og þáverandi utanríkisráðherra hóf að ræða þann möguleika á að styrkja aðrar stofnanir, allt saman samkvæmt handriti Ísraels. Lygar Ísraels snúast þó ekki eingöngu um UNRWA. Til að mynda þurfti að reyna að réttlæta árásir og eyðileggingu heilbrigðiskerfisins á Gaza. Undir stærsta sjúkrahúsi Gaza, Al Shifa, átti samkvæmt Ísrael að liggja höfuðstöðvar Hamas. Með tölvugerðu myndbandi um hugsanlegt útlit og staðsetningu þessarar höfuðstöðvar náði Ísrael að sannfæra heiminn um þá miklu ógn sem steðjaði af sjúkrahúsinu sem myndi réttlæta aðgerðir í og við sjúkrahúsið. Með þöglu samþykki Íslands, gjöreyðilagði Ísrael sjúkrahúsið í tveimur stórfelldum árásum, framkvæmdi fjöldaaftökur á börnum og fullorðnum og pyntaðiyfirlækni til bana. Ísland samþykkti þessar aðgerðir og hefur aldrei efast um réttmæti Ísraels að framkvæma þennan hryllings sem átti sér stað. Það er mjög líklegt að Utanríkisráðuneytið hafi verið fullkomlega meðvitað um að staðhæfingar Ísraels stæðist enga skoðun en ákvað engu að síður að nýta ekki rödd sína til að reyna stöðva árásina á sjúkrahúsið, stofnun sem vernduð er samkvæmt Genfarsáttmálanum. Það er þyngra en tárum taki að vita að Al-Shifa sjúkrahúsið er alls ekki það eina sem Ísrael hefur lagt í rúst. Rúmlega 400 árásir hafa verið gerðar á heilbrigðiskerfi Gaza, yfir 480 heilbrigðisstarfsfólk myrt og minnst 160 handtekin. Aðeins 11 sjúkrahús af 36 eru með fulla virkni og þarf starfsfólk að sinna sjúkum og slösuðum með takmarkaðar byrgðir. Það má ekki gleymast að fyrir utan stöðugt flæði slasaðara síðustu 7 mánuði þá þurfa 2.2 milljón íbúa Gaza einnig á almennri heilbrigðisþjónustu á að halda, eitthvað sem ekki er hægt að veita á viðeigandi hátt. Til samanburðar má vísa til talna bráðamóttöku Landspítalans sem tók á móti 23 þúsund einstaklingum frá janúar til mars og það á friðartímum. Árásir Ísraels á heilbrigðisinnviði eru alvarlegir stríðsglæpir sem Ísland hefur ekki tekiði alvarlega. Ísland hefur hundsað þær hörmulegu afleiðingar sem sprengingar á sjúkrahúsum og takmörkun á neyðaraðstoð hefur haft í för með sér, og þannig staðið við hlið Ísraels í að ekki einungis sprengja Palestínumenn í loft upp, heldur tryggja það hreinlega að þau deyji án aðgengis að læknisþjónustu. Nýjasta útspil Ísraels er að ráðast inn í Rafah, undir því gamalkunnuga yfirskini að Rafah sé notað undir hryðjuverkastarfsemi, og því einnig nauðsynlegt að taka yfir landamærastöðina við Rafah og stöðva allan flutning þaðan af nauðsynjavörum til Gaza. Ísrael vísvitandi minnist ekki á það að enginn innflutningur fer í gegnum Rafah nema með ítarlegu eftirliti og samþykki Ísraels. Rafah liggur við landamærin að Egyptalandi og er íbúafjöldi að jafnaði um 220 þúsund. Í dag hýsir borgin um 1.2 milljón manns í neyðarskýlum, eftir að Ísrael neyddi Palestínubúa að flýja þangað frá norðurhluta Gaza svæðisins, þar sem Rafah átti að vera öruggt svæði. Nú hefur Ísrael hins vegar snúist hugur og þrátt fyrir að Hamas hafi samþykkt vopnahlé, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir frá vinum sínum Bandaríkjunum og Þýskalandi að ráðast ekki inn í Rafah, þrátt fyrir að helstu hjálparstofnanir heims vara við hörmulegum afleiðingum innrásar, þá ákveður Ísrael að ráðast inn á svæðið með sprengjum, skriðdrekum og herdeildum. Viðbrögð Íslands eru dræm að venju og byggjast líklegast á því að Ísland samþykkir aðgerðir Ísraels og neitar að beita neinum raunverulegum þrýsting til að tryggja öryggi Palestínumanna. Það hefur verið marg sannað að Ísrael stundar pyntingar, handtekur og dæmir börn í fangelsi í herdómstólum. Ísrael stundar aðskilnaðarstefnu, þjóðarmorð og arðrán á landi Palestínu, Ísrael rífur niður hús, sundrar fjölskyldum og sprengir í sundur, fólk sem er læst inni á Gaza eins og dýr í búri. Þrátt fyrir ítrekaðar athugasemdir helstu mannréttindastofnana heimsins um hungursneyð af mannavöldum, hópmorð, nauðganir og pyntingar, þá hefur Ísland aldrei sagt Ísrael til syndana. Ísland hefur aldrei staðið með mannréttindum Palestínu, hvorki á „fríðartímum“ né þegar Ísrael ræðst á Gaza. Ísland leyfir Ísrael að komast upp með nær hvað sem er. Staðreyndin er sú að ríkisstjórn Íslands lítur ekki á Palestínufólkið sem jafningja Ísraela, eða jafninga Íslendinga. Á meðan Ísrael fær að komast upp með að drepa 34 þúsund manns, þar af 15 þúsund börn, gjöreyðileggja innviði Gaza, sprengja alla háskóla, spítala, vegi, bryggjur og heimili, þá eru það Palestínumenn sem standa röngu megin. Ísrael pyntar, beitir kynferðislegu ofbeldi og notar Palestínumenn sem mannlega skildi. Allt saman sem Palestínumenn fá miklar ávítur fyrir en skrásettar og linnulausar árásir og óviðeigandi beitingu valds Ísrael gegn öllum Palestínumönnum hefur ekki fengið Ísland til að bregðast við. Hins vegar hafa óljósar og ósannaðar ásakanir og lygar Ísraels dugað til að Ísland skrúfi fyrir peningaaðstoð til Palestínu og gagnrýni á Hamas nær hæstu hæðum. Ísrael, síðasta nýlenduríki Evrópu, hefur stuðning frá álfunni sama hvað það kostar. Nýlendutíminn er ekki eitthvað sem við lesum um í sögubókum - við erum ennþá stödd á nýlendutíma. Tímabili sem er litað af ofbeldi, morðum, nauðgunum og misþyrmingu Evrópubúa á infæddum. Staðreyndin er að þrátt fyrir að við viljum trúa öðru, þá leið nýlendustefnan aldrei undir lok og er Ísrael síðasta vígi þessa óhugnalegra tíma. Það er kominn tími til að stoppa þennan óhugnað sem framkvæmdur er undir verndarhendi Íslands og Evrópu. Tryggja þarf að Ísrael viðurkenni tilvist Palestínu, leiðrétti og biðjist afsökunar á kúguninni og ofbeldinu og tryggi það að Palestína fái það frjálsa og sjálfstæða ríki sem það á rétt á, laust við ofbeldi, hernám og arðrán. Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Yousef Ingi Tamimi Mest lesið Heiðursgestur Viðreisnar vill heimsveldi Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Sex ára sáttmáli Davíð Þorláksson Skoðun Skapandi menntun skilar raunverulegum árangri Bryngeir Valdimarsson Skoðun Styrkjum stöðu leigjenda Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Innleiðum birgðaskyldu á eldsneyti Halla Hrund Logadóttir Skoðun Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir Skoðun Stjórnendur sem mega ekki stjórna Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skapandi menntun skilar raunverulegum árangri Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Sex ára sáttmáli Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Stjórnendur sem mega ekki stjórna Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stokkhólmseinkenni sem við ættum að forðast Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Eflum iðnlöggjöfina og stöðvum brotin Hilmar Harðarson skrifar Skoðun Pjattkratar taka til Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Sumt er bara ekki hægt að rökræða Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Vaxtamunarviðskipti láta aftur á sér kræla Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Innleiðum birgðaskyldu á eldsneyti Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Rétt skal vera rétt um gatnamót við Höfðabakka og Bæjarháls Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir skrifar Skoðun NATO riðar til falls en hvað þýðir það fyrir skilnaðarbarnið Ísland? Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Græðgin í forgrunni Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Greiningar eða lausnir – hvort vegur þyngra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sterk staða Hafnarfjarðar Orri Björnsson skrifar Skoðun Bless bless jafnlaunavottun Sigríður Margrét Oddsdóttir skrifar Skoðun Miðstýrt skólakerfi eða fjölbreytni með samræmdu gæðamati? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Heiðursgestur Viðreisnar vill heimsveldi Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Veðmál barna – hættulegur leikur sem hægt er að stöðva Jóhann Steinar Ingimundarson skrifar Skoðun Allt leikur í umburðarlyndi – eða hvað? Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Lyfjafræðingar - traustur stuðningur í flóknum heimi Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkt „plan“ fyrir íslensk heimili Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ísland og móðurplanta með erindi Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Háttvirta nýja þingkonan, María Rut Kristinsdóttir Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna – eitthvað sem mig varðar? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Af hverju ættum við að stunda geðrækt, rétt eins og líkamsrækt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Villa um fyrir bæjarbúum Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Olíufyrirtækin vissu Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun
Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun
Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Innleiðum birgðaskyldu á eldsneyti Halla Hrund Logadóttir skrifar
Skoðun Rétt skal vera rétt um gatnamót við Höfðabakka og Bæjarháls Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar
Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir skrifar
Skoðun NATO riðar til falls en hvað þýðir það fyrir skilnaðarbarnið Ísland? Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju ættum við að stunda geðrækt, rétt eins og líkamsrækt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun
Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun
Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun