Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 13. maí 2024 15:00 Pink Iceland teymið Eva María Þórarinsdóttur Lange, Birna Hrönn og Hannes Sasi. Luxe Moments „Þetta sýnir okkur að það sé tekið eftir þeirri vinnu sem við höfum lagt í að koma Íslandi á kortið sem ákjósanlegum áfangastað fyrir brúðkaup og viðburði“, segja forsvarsmenn ferðaskrifstofunnar Pink Iceland, sem hlaut í apríl verðlaun sem uppáhalds skipuleggjandi áfangastaðabrúðkaupa í Evrópu og Asíu. Skrifstofan er talin brautryðjandi í skipulagningu brúðkaupa fyrir erlenda gesti sem vilja gifta sig á Íslandi.
Í fréttatilkynningu segir: „Verðlaunin eru veitt af RSVP, virtum alþjóðlegum samtökum lúxusviðburða- og brúðkaupsskipuleggjenda, sem á ári hverju heiðra þá skipuleggjendur sem þau telja skara fram úr á sínu sviði en aðeins meðlimir samtakanna eru kosningabærir. Verðlaunaathöfnin fór fram á hinu sögufræga Ciragan Palace Kempinski Hotel í Istanbul.“ Pink Iceland skipuleggur fjölbreytt brúðkaup. Kristín María Dýrmæt viðurkenning Forsvarsmenn Pink Iceland, þau Birna Hrönn, Eva María og Hannes, segja verðlaunin skipta þau miklu máli og segja þau sambærileg Óskarsverðlaununum nema fyrir brúðkaupsskipulagningu. „Það er dýrmætt að fá þessa viðurkenningu frá kollegum okkar sem koma frá löndum og mörkuðum þar sem þjónusta sem þessi á sér mun lengri sögu. Þetta sýnir okkur að það sé tekið eftir þeirri vinnu sem við höfum lagt í að koma Íslandi á kortið sem ákjósanlegum áfangastað fyrir brúðkaup og viðburði. Við höfum sótt nokkrar ráðstefnur og fundi hjá þessum samtökum á síðustu árum og nýtt þennan vettvang til að skiptast á hugmyndum og sækja okkur innblástur í eigið starf, auk þess sem við höfum komið inn með þarfa hinsegin fræðslu og innsýn inn í starf RSVP. Við höfum frá fyrsta degi unnið út frá gildum heiðarleika, sjálfbærni, jafnrétti og virðingu fyrir fjölbreytileikanum og trúum því að þau ófrávíkjanlegu gildi ásamt töfrum íslensks landslags, stórkostlegu teymi og ómetanlegum samstarfsaðilum séu lykillinn að velgengni okkar. Sú nálgun þótti ekkert endilega vænleg til árangurs í árdaga Pink Iceland en hefur sannað sig í dag enda erum við orðin eftirsóttir fyrirlesarar á hinum ýmsu alþjóðlegu ferða- og brúðkaupsráðstefnum úti um allan heim.“ Verðlaunahafar RSVP í öllum flokkum í Istanbul.Luxe Moments Upphaflega hugsað fyrir hinsegin fólk Þetta eru önnur verðlaunin sem Pink Iceland hlýtur á skömmum tíma en í nóvember 2023 hlaut fyrirtækið Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar í annað sinn. Pink Iceland er hugarfóstur Evu Maríu Þórarinsdóttur Lange sem fyrir tæpum fimmtán árum þróaði hugmynd að hinsegin ferðaþjónustufyrirtæki og gerði viðskiptaáætlun sem hluta af verkefni í ferðamálafræði í HÍ. Hugmyndin fékk vængi eftir þátttöku í Gullegginu þar sem hún vann til verðlauna og klaktist svo að lokum út árið 2011 þegar hún og Birna Hrönn, eiginkona Evu Maríu, stofnuðu fyrirtækið og vinur þeirra Hannes Sasi bættist í eigendahópinn. „Til að byrja með var áhersla lögð á að vekja athygli á Íslandi sem góðum áfangastað fyrir hinsegin fólk. Pink Iceland bauð upp á ferðir, ferðaskipulagningu og viðburði fyrir markhópinn og þegar samkynja hjónabönd urðu lögleg á Íslandi lá beint við að bjóða viðskiptavinum, sem flest máttu ekki gifta sig heima fyrir upp á að geta gift sig á Íslandi. Það er óhætt að segja að sú ákvörðun hafi verið mikið gæfuspor. Pink Iceland hefur vaxið og dafnað og í dag eru tíu manns í fullri vinnu hjá fyrirtækinu auk mikils fjölda verktaka sem koma inn eftir þörfum í brúðkaup eða viðburði. Á síðasta ári skipulagði fyrirtækið sitt þúsundasta brúðkaup,“ segja þær. Pink Iceland skipulagði sitt þúsundasta brúðkaup í fyrra og hafa komið að ýmsum fjölbreyttum viðburðum. Kristín María Ísland ratar á lista yfir eftirsóknarverðustu brúðkaupsstaðina „Fyrir stofnun Pink Iceland voru svokölluð áfangastaðabrúðkaup (e. Destination Weddings) fátíð á Íslandi og það mætti kalla það kaldhæðni örlaganna að lög sem veittu samkynja pörum rétt til að giftast voru ekki samþykkt á Íslandi fyrr en árið 2010 og gerði um leið Pink Iceland kleift að bjóða sínum markhópi upp á þá þjónustu,“ segir í fréttatilkynningu. Eva María og Birna segjast hafa fundið fyrir þörf á fjölbreyttari brúðkaupum. „Við vissum ekki í hvað stefndi en eftir að hafa skipulagt nokkur brúðkaup sáum við þörfin eftir þjónustunni var mikil, ekki einungis frá hinsegin fólki heldur einnig frá gagnkynhneigðum pörum sem leituðu til fyrirtækisins í auknu mæli. Það var auðsótt enda voru þau pör sem höfðu samband við okkur meðvituð um fyrir hvað við stöndum fyrir og töldu það okkur til tekna fyrir hitt. Við þurftum að finna upp nokkur hjól, reka okkur á fjölda veggja en með þrotlausri vinnu, nýstárlegri markaðssetningu, góðu teymi og velviljuðum innlendum samstarfsaðilum varð ekki aftur snúið og nú, tólf árum frá okkar fyrsta brúðkaupi, ratar Ísland iðulega á lista yfir eftirsóknarverðustu lönd heims til að gifta sig í. Við erum stolt af okkar þætti í þeirri vegferð.“ View this post on Instagram A post shared by PINK ICELAND (@pinkiceland) Hér má nálgast nánari upplýsingar um Pink Iceland.
Brúðkaup Ferðalög Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira