Sígild hönnun frá Rosti verður 70 ára Ásbjörn Ólafsson ehf 4. júní 2024 08:33 Skálin er þekkt fyrir framúrskarandi gæði og ekki síst getu sína til þess að aðlagast breyttum tímum. Frá því Sigvard Bernadotte og Acton Bjørn hönnuðu Margrétarskálina á 6. áratug síðustu aldar hefur þessi einstaka skál frá Rosti orðið vel þekkt og sígilt vinnutæki í eldhúsum um allan heim. Skálin er nefnd Margrétarskál til heiðurs Margréti Þórhildi II fyrrum Danadrottningar.
Árið 1954 þegar Margrét prinsessa af Danmörku var þrettán ára gömul og nýorðin næsti arftaki krúnunnar fékk Sigvard Bernadotte, frændi hennar, þá hugmynd að nefna skál henni til heiðurs og fékk til þess leyfi frá dönsku krúnunni. Hann var meðeigandi hönnunarstofu sem Rosti átti í samstarfi við og fékk til þess að hanna það sem átti eftir að verða margverðlaunuð og sígild dönsk hönnun. Samt sem áður hefur Margrétarskálin hlotið lof fyrir margt annað en uppruna sinn eingöngu. Skálin er þekkt fyrir framúrskarandi gæði og ekki síst getu sína til þess að aðlagast breyttum tímum. Nú eru skálarnar steyptar úr endurvinnanlegu plasti sem uppfyllir ströngustu kröfur um endurvinnanleg efni. Ný umgjörð, sama innihald Margrétarskálin hefur haldið sinni upprunalegu hönnun og efnivið í sjö áratugi en nú er komið að því að steypa skálina í nýju, endurvinnanlegu plasti, Durostima®, sem uppfyllir ströngustu kröfur um endurvinnanleg efni. Nýr efniviður skálarinnar hefur sömu styrkleika og forverinn, og gott betur en það. Skálin er nú ennþá sterkari og með aukinni brotvörn auk þess að mega bæði fara í örbylgjuofn og setja í frysti. Skálin býður upp á fyrsta flokks gæði og notagildi. Með stöðugleikagúmmí á botninum og hagnýtum hellistút, er skálin stöðug og auðveld í notkun – og eftir notkun má léttilega skella henni í uppþvottavél. Líkt og með öllum Rosti vörum, fylgir henni auk þess 5 ára ábyrgð. Heimsfræg framreiðsluskál Frá því að Margrétarskálin kom fyrst á markað hafa selst meira en 25 milljón eintök. Skálin hefur hlotið viðurkenningar frá mörgum af virtustu hönnunarhúsum heims. Árið 1971 hlaut hún “Isenkræmmernes Designpris” verðlaunin og dönsku hönnunarverðlaunin árið 1985. Í seinna skiptið lét Rosti gera sérstaka viðhafnarútgáfu af Margrétarskálinni úr Sterlings silfri með aðstoð Georg Jensen silfursmiða, sem afhent var drottningunni. Silfurskálin var hluti af sérstakri sýningu í Kristjánsborgarhöll ,,Við hæfi Drottningar” árið 2019, þar sem hún var til sýnis ásamt öðrum glæsimunum úr safni Drottningarinnar. Á níunda áratugnum var upprunalega skálin til sýnis á Nútímalistasafninu í New York, en það undirstrikaði stöðu hennar sem engu minna en listaverk. Árið 1997 var rauðu Margrétarskálinni fagnað sérstaklega þegar hún var gerð ódauðleg með sínu eigin danska frímerki og fest í sessi sem mikilvægur hluti af danskri hönnunarsögu. Eldri gerðum af Margrétarskálinni verður hægt og rólega skipt út fyrir nýja og endurbætta útgáfu á næstu misserum á sölustöðum Rosti. Margrétarskálin er aðeins stór hluti af sögunni. Með nýjum efnivið hefur hún enn einu sinni sannað aðlögunarhæfni sína að nútímalegum þörfum og kröfum – án þess að tímalausri hönnun framúrskarandi gæðum og hagnýtni hennar sé fórnað. Margrétarskálin er vís til þess að lifa um ókomin ár. Eldri gerðum af Margrétarskálinni verður hægt og rólega skipt út fyrir nýja og endurbætta útgáfu á næstu misserum á sölustöðum Rosti. Rosti Margrétarskálarnar fást meðal annars í Hagkaup, Fjarðarkaup, Byggt og búið og Bast.
Hús og heimili Matur Tíska og hönnun Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira