Katla tryggði Kristianstad sigur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2024 15:00 Katla Tryggvadóttir er að byrja vel í atvinnumennskunni. Vísir/Hulda Margrét Katla Tryggvadóttir var hetja Kristianstad í sænsku deildinni í dag þegar hún skoraði sigurmarkið í útileik á móti Piteå.
Katla skoraði markið sitt á 63. mínútu eða aðeins tveimur mínútum eftir að Tabby Tindell hafði jafnaði metin. Piteå komst 1-0 yfir strax á tíu mínútu leiksins þegar Sara Eriksson skoraði en endurkoma Kristianstad hófst eftir klukkutíma leik. Katla var í byrjunarliðinu ásamt Hlín Eiríksdóttur. Guðný Árnadóttir var ekki í leikmannahópnum. Þetta var annað mark Kötlu í fyrstu fjórum deildarleikjum sínum á leiktíðinni en hún skoraði einnig í fyrsta leik sínum á móti AIK. Hún er á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku. Kristianstad er í sjöunda sæti með sex stig út úr fyrstu fjórum leikjunuum en liðið hafði tapað síðustu tveimur leikjum sínum. Þrjár íslenskar stelpur voru í byrjunarliðinu þegar KIF Örebro tapaði 1-0 á heimavelli á móti Vittsjö GIK. Vittsjö skoraði sigurmarkið sitt í uppbótatíma. Markið skoraði Tanya Boychuk, fyrrum leikmaður Þróttar í Bestu deildinni. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir spilaði fyrstu 55 mínúturnar en Katla María Þórðardóttir og Áslaug Sigurbjörnsdóttir kláruðu allan leikinn.
Sænski boltinn Mest lesið Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sjá meira