„Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2024 16:01 Anthony Edwards var frábær með Minnesota Timberwolves í seríunni á móti Phoenix Suns. AP/Ross D. Franklin Lögmál leiksins er á dagskrá á Stöð 2 Sport 2 í kvöld en úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta er nú í fullum gangi og það er því um nóg að tala í þætti kvöldsins.
Minnesota Timberwolves varð fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í annarri umferð úrslitakeppninnar eftir að hafa sópað út stórstjörnuliði Phoenix Suns 4-0. Strákarnir í Lögmáli leiksins ræddu meðal annars um athyglisverðan blaðamannafund eftir þennan fjórða sigur Timberwolves í röð þar sem mættir voru Karl-Anthony Towns og Anthony Edwards. Edwards sést þar tala Towns upp með því tala um mikilvægi þess að hann sé ekki í villuvandræðum því hann skapi svo mörg vandamál fyrir mótherjanna þegar hann er inn á vellinum. „Anthony Edwards. Ef þú ætlar að kenna eitthvað í leiðtogahæfni. Hann veit alveg að hann er betri en Karl-Anthony Towns. Hann er 22 ára og hann er þarna að peppa sinn mann upp við hliðina á sér,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson. „Ef það vefst fyrir einhverjum hver er Alpha hundurinn í þessu liði,“ sagði Kjartan Atli. „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum,“ skaut Hörður Unnsteinsson inn í. „Karl-Anthony Towns er með keðjurnar í flottu fötunum. Anthony Edward mætir í hlýrabolnum og er svona fimmfalt svalari,“ sagði Tómas Steindórsson. „Spurningin var á Karl-Anthony Towns en hann tekur hana og rúllar þessari spurningu upp. Þetta er gaur sem kann að láta liðsfélaga sína líða vel,“ sagði Kjartan. Það má sjá þetta brot úr þætti kvöldsins hér fyrir neðan. Lögmál leiksins er á dagskrá á Stöð 2 Sport 2 í kvöld og hefst klukkan 20.00. Klippa: Lögmál leiksins: Blaðamannafundur Edwards og Towns
NBA Lögmál leiksins Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fótbolti Jesús áfram í Stjörnunni Körfubolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira