Allir vinir í skóginum: Sameiginlegt Fan Zone fyrir fyrsta leik Nadíu með Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2024 10:00 Nadía Atladóttir var kynnt sem nýr leikmaður Vals fyrir fyrsta leik karlaliðsins í Bestu deildinni. Valur Nadía Atladóttir, fyrrum fyrirliði bikarmeistara Víkings, spilar væntanlega sinn fyrsta leik með Val á morgun og auðvitað lendir það þannig að leikurinn er á móti hennar gömlu félögum í Víkingi.
Nadía sagði upp samningi sínum á dögunum og Víkingar ákváðu að leyfa henni að fara frítt frá félaginu. Hún samdi í framhaldinu við Íslandsmeistara Vals. Nadía átti mikinn þátt í uppgangi Víkingsliðsins í fyrrasumar þar sem liðið vann sér sæti í Bestu deildinni og skoraði meðal annars tvö mörk í sigrinum á Blikum í bikarúrslitaleiknum. Hvorki Víkingar né Nadía ætla að gera leiðindamál úr þessum félagsskiptum og hafa talað vel um hvort annað í viðtölum. Það eru líka greinilega allir vinir í skóginum því Valur og Víkingur hafa nú boðað sameiginlegt Fan Zone fyrir fyrsta leik Nadíu með Val. Leikur þessi er leikur í Meistarakeppni KSÍ sem fer fram á N1-vellinum á Hlíðarenda annað kvöld. Valskonur mæta þangað sem Íslandsmeistarar en Víkingar sem bikarmeistarar. Stuðningsmenn félaganna geta rætt félagsskipti Nadíu og allt milli himins og jarðar þegar þeir mæta á stuðningsmannasvæðið, Fan Zone, á Hlíðarenda annað kvöld en það opnar klukkan 18.30. Valsmenn auglýsa viðburðinn með dramatíski og glæsilegri mynd af umræddri Nadíu Atladóttur í treyju númer þrettán hjá Val og með Valstrefilinn á lofti.
Besta deild kvenna Valur Víkingur Reykjavík Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Sjá meira