Reiknar ekki með endurkomu Gylfa Þórs Aron Guðmundsson skrifar 11. mars 2024 14:57 Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Lyngby. Getty/Lars Ronbog David Nielsen, nýráðinn þjálfari Íslendingaliðs Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni. Reiknar ekki með því að Gylfi Þór snúi aftur í leikmannahóp liðsins er hann hefur jafnað sig af meiðslum sem hafa verið að plaga hann.
Frá þessu greinir Nielsen í samtali við danska miðilinn Bold og er hann þar með annar þjálfari Lyngby á stuttum tíma sem segist ekki reikna með endurkomu Gylfa Þórs til Lyngby. Nielsen tók við þjálfarastöðunni hjá Íslendingaliðinu fyrir nokkrum dögum síðan eftir að Norðmanninnum Magne Hoseth hafði verið sagt upp störfum eftir aðeins 50 daga í starfi. Eins og greint hefur verið frá æfir Gylfi Þór þessa dagana með Valsmönnum sem eru staddir á Montecastillo á Spáni í æfingarferð. RÚV greindi svo frá því í morgun, og hafði eftir Berki Edvardssyni formanni knattspyrnudeildar Vals, að viðræður milli Vals og Gylfa Þórs um samning sín á milli væru í gangi. Í janúar fyrr á þessu ári rifti Gylfi Þór samningi sínum við Lyngby. Gylfi hefur glímt við meiðsli síðustu mánuði og fékk samningi sínum við Lyngby rift til að geta sinnt endurhæfingu sinni á Spáni án þess að þiggja laun hjá danska félaginu á meðan. „Ég reikna ekki með því. Ég legg traust mitt á þá leikmenn sem eru nú þegar til staðar hjá okkur,“ svaraði David Nielsen, nýráðinn þjálfari Lyngby, aðspurður hvort hann væri að búast við því að Gylfi myndi snúa aftur til Lyngby. Á Spáni hefur Gylfi Þór notið aðstoðar Friðriks Ellerts Jónssonar, sjúkraþjálfara, í endurhæfingu sinni.
Danski boltinn Mest lesið Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti Fleiri fréttir Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Gagnrýnir FIFA fyrir brottrekstur Lamours: „Stjórnun sem byggir á ótta“ Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Enn á gjörgæslu eftir að hafa misst fótanna í sundlaug Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjá meira