Vill þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Grænlands Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. mars 2024 11:52 Frá grænlensku höfuðborginni Nuuk. Getty Aqqalu C. Jerimiassen, formaður grænlenska stjórnarandstöðuflokksins Atassut, segir tímabært að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Grænlands frá Danmörku.
Hann segir að það sé spurning sem almenningur á Grænlandi þurfi að fá tækifæri til að svara. „Það er tímabært að brjóta þennan vítahring og leggja spurninguna beint í hendur fólksins,“ segir Aqqalu samkvæmt grænlenska miðlinum Sermitsiaq. „Við þurfum þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæðisspurninguna svo við getum afgreitt umræðuna í eitt skipti fyrir öll.“ Hann segir að það kunni oft að virðast sem sjálfstæði og lýðveldismyndun séu einu pólitísku umræðurnar á Grænlandi. Í áratugi hafi grænlenska þjóðin verið föst í síendurtekinni og sískautaðri rökræðu um málið. „Umræðan hefur klofið þjóðina og tekið athygli frá mörgum alvarlegum málum sem við ættum að ræða,“ segir hann. Hann segist vilja halda þjóðaratkvæðagreiðsluna á sama tíma og næstu kosningar til Inatsisartut, grænlenska þingsins, til að sóa ekki óþarfa skattfé. „Ef meirihlutinn greiðir atkvæði með sjálfstæðu Grænlandi, þá þýðir það ekki að það verði að veruleika í sömu andrá. En það verður opinber og lögbundin viljayfirlýsing. Þá losnum við við þetta endalausa með og á móti lýðveldismyndun og tökum næsta skref.“
Grænland Danmörk Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Sjá meira