ÍA kom sér á toppinn og Blikar halda í vonina Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. mars 2024 15:30 Blikar eiga enn séns á að komast upp úr riðlinum í Lengjubikarnum. VÍSIR/HULDA MARGRÉT ÍA vann sterkan 1-2 sigur er liðið heimsótti Leikni Reykjavík í riðli 4 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag. Á sama tíma gerðu Breiðablik og Vestri 1-1 jafntefli í riðli1.
Það var Steinar Þorsteinsson sem kom ÍA í forystu gegn Leikni strax á sjöttu mínútu áður en Shkelzen Veseli jafnaði metin fyrir Leiknismenn tuttugu mínútum síðar. Varamaðurinn Árni Salvar Heimisson tryggði Skagamönnum svo sigurinn með marki á 51. mínútu, lokatölur 1-2. Með sigrinum kom ÍA sér í toppsæti riðils 4, en liðið er með tíu stig, einu stigi meira en Víkingur sem situr í öðru sæti. Leiknismenn sitja hins vegar í fjórða sæti með sjö stig. Á sama tíma gerðu Breiðablik og Vestri 1-1 jafntefli þar sem Pétur Bjarnason kom Vestra yfir snemma í síðari hálfleik. Stuttu síðar voru tveir úr liði Vestra hins vegar sendir í sturtu með rautt spjald, en það voru þeir Morten Ohlsen Hansen, leikmaður Vestra, og Vladan Dogatovic, aðstoðarþjálfari. Blikar nýttu sér liðsmuninn og Kristófer Ingi Kristinsson jafnaði metin með marki úr víaspyrnu á 86. mínútu og þar við sat. Breiðablik situr nú í þriðja sæti riðils 1 með sjö stig eftir fjóra leiki, en Vestri situr sæti neðar með tvö stig. Breiðablik á enn möguleika á að komast upp úr riðlinum, en liðið mætir Keflavík í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins.
Lengjubikar karla Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Sjá meira