Bræðurnir Styrmir Snær og Tómas Valur Þrastarsynir fá ekki að spila saman á móti Ungverjalandi í fyrsta leik Íslands í undankeppni EM 2025 en Craig Pedersen hefur valið hóp fyrir kvöldið.
Tómas Valur er eini nýliðinn í hópnum en hann er utan hópsins að þessu sinni. Stymir er með.
Martin Hermannsson spilar sinn fyrsta landsleik í tvö ár og Keflvíkingurinn Sigurður Pétursson er í hópnum.
Haukur Helgi Pálsson, Álftanesi, Sigtryggur Arnar Björnsson, Tindastól og Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Hamri eru meiddir og geta ekki leikið í þessum glugga.
Í frétt á heimasíðu KKÍ kemur fram að Tómas Valur og Hjálmar Stefánsson koma inn í liðið fyrir leikinn úti í Tyrklandi á sunnudaginn fyrir tvo leikmenn í kvöld.
- Landslið Íslands verður þannig skipað í kvöld:
- Elvar Már Friðriksson · PAOK, Grikklandi · 68
- Hilmar Smári Henningsson · Eisbären Bremerhaven, Þýskalandi · 14
- Jón Axel Guðmundsson · CB Lucentum Alicante · 30
- Kristinn Pálsson · Valur · 31
- Kristófer Acox · Valur · 51
- Martin Hermannsson · Alba Berlin, Þýskaland · 73
- Orri Gunnarsson · OCS Swans Gmunden, Austurríki · 5
- Sigurður Pétursson · Keflavík · 2
- Styrmir Snær Þrastarson · Belfius Mons-Hainaut, Belgíu · 14
- Tryggvi Snær Hlinason · Bilbao Basket, Spánn · 63
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson · Tindastóll · 27
- Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan · 85