Crystal Palace staðfestir að Roy Hodgson sé hættur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2024 15:52 Roy Hodgson var elsti knattspyrnustjóri ensku úrvalsdeildarinnar. Getty Roy Hodgson er hættur sem knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace en Lundúnafélagið hefur staðfest þetta á miðlum sínum.
Fréttir bárust af því fyrir helgi að Palace ætlaði að reka Hodgson eftir slakt gengi liðsins en síðan bárust fréttir af því að hann hefði veikst skyndilega á æfingasvæðinu. Hodgson, sem er orðinn 76 ára gamall, var fluttur á sjúkrahús og eftir það hefur verið beðið eftir næstu skrefum hjá forráðamönnum Crystal Palace. Liðið er í sextánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og hefur á síðustu vikum dregist niður í fallbaráttuna. Samkvæmt frétt á heimasíðu Crystal Palace hefur Hodgson ákveðið að segja starfi sínu lausu og gefa félaginu tækifæri til að finna annan mann í hans stað. Hodgson hefur stýrt Crystal Palace liðinu í 200 leikjum og á sex tímabilum. Paddy McCarthy og Ray Lewington munu stýra liðinu á móti Everton á Goodison Park í kvöld. „Þessi klúbbur er mér mjög kær og skiptir mig miklu máli,“ sagði Roy Hodgson í fréttatilkynningu Crystal Palace. Oliver Glasner, fyrrum stjóri þýska félagsins Eintracht Frankfurt, þykir líklegastur til að taka við starfinu. Roy Hodgson has stepped down from his post as first-team manager.We thank Roy for his outstanding service, in which he managed 200 games across six seasons.— Crystal Palace F.C. (@CPFC) February 19, 2024
Enski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira