Ekki kveðjustund hjá manninum sem elskar ostborgara og amerískan fótbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. febrúar 2024 15:31 Chris Jones, stjörnuvarnarmaður Kansas City Chiefs, tekur hér utan um þjálfara sinn Andy Reid eftir að liðið tryggði sér sæti í Super Bowl leiknum. Getty/Rob Carr Andy Reid á möguleika á að gera Kansas City Chiefs að NFL-meisturum annað árið í röð og í þriðja sinn á fimm árum.
Sumir hafa velt því fyrir sér hvort þessi 65 ára gamli þjálfari gæti mögulegt sett þjálfaraflautuna upp á hillu eftir Super Bowl leikinn á sunnudaginn en hann sjálfur segist ekkert vera að hugsa um slíkt. Reid tók við starfinu hjá Chiefs aðeins nokkrum dögum eftir að hann var rekinn frá Philadelphia Eagles eftir fjórtán ára starf í borg bróðurkærleikans. Það var árið 2013 og nú eru liðin ellefu ár. Hann hefur síðan byggt upp meistaralið í Kansas City og lykilinn af því var náttúrulega að veðja á leikstjórnandann Patrick Mahomes. Reid er vinsæll hjá öllum í Kansas City enda frábær þjálfari. Ást hans á ostborgurum er líka öllum kunn enda fékk hann hamborgara í gjöf frá leikmönnum sínum. Amerískur fótbolti og ostbogarar. Þarf eitthvað mikið meira í lífinu. andy reid has been a head coach in the nfl for 25 seasons(6 others have coached 25+ years and all the others but belichick began over 60 yrs ago ) pic.twitter.com/9sMxBXbook— Jay Cuda (@JayCuda) January 31, 2024 25. tímabilið hans í NFL Blaðamenn hafa verið að spyrja Reid út í möguleikann á því að hann myndi hætta eftir leikinn á sunnudaginn. Þetta er 25. tímabil hans í NFL deildinni og hann verður 66 ára gamall í næsta mánuði. „Mamma og pabbi sögðu við mig þegar þau voru enn að vinna að þú veist sjálfur best hvenær tími þinn er kominn. Ég er tilbúinn í slaginn núna. Keyrum á þetta,“ sagði Andy Reid spakur. „Þetta sögðu þau alltaf við mig þegar ég ungur. Ég lít á þetta eins í dag. Einhvers staðar einhvern tímann áttar þú þig á því að tíminn sé kominn. Sá dagur er ekki í dag,“ sagði Reid. Clark Hunt, stjórnarformaður Chiefs, hefur ekki fengið nein skilaboð frá Reid um að að þjálfarinn gæti verið að hætta. Chiefs desperately want Andy Reid to coach team well after Super Bowl: We love him https://t.co/mWyuyxfG8c pic.twitter.com/hhFEl9ZW7J— New York Post (@nypost) February 7, 2024 Heldur vonandi áfram sem lengst „Ég veit bara að hann er á fullu í þessu og nýtur þess. Ég hef enga tilfinningu fyrir því að hann sé að fara hætta á næstunni. Ég veit samt ekki hversu lengi hann endist í þessu en ég vona bara að það verði sem lengst,“ sagði Clark Hunt. Hann segist ekkert vera farinn að velta fyrir því hvað taki við þegar Reid hættir. Með sigri á sunnudaginn getur Chiefs varið titilinn og það hefur ekkert lið gert í tuttugu ár. „Ég elska að vera hluti af þessu félagi. Þetta er frábær klúbbur. Við unnum nokkra leiki en við verðum að halda áfram. Við verðum að halda áfram eftir þennan leik,“ sagði Reid. ESPN fjallar um mögulega ákvörðun Reid og að það séu langmestar líkur á því að hann haldi áfram að þjálfa liðið. Andy Reid s career head coaching stats: 25 seasons 258-144-1 regular season record 25-16 playoff record 20 seasons with a winning record 14 division titles 2002 AP Coach of the Year 4x AFC champion, 1x NFC champion 2x SB champ Only coach to win 100+ pic.twitter.com/evBx8xhGOC— NFL Stats (@NFL_Stats) February 4, 2024 „Hann er á góðum stað, bæði með Pat (Mahomes) en einnig hvað varðar þjálfarateymið og starfsfólkið. Þetta er það sem hann vildi alltaf. Ég tel að hann eigi mikið eftir sem fótboltaþjálfari og ég sé hann fyrir mér þjálfa liðið í mörg ár til viðbótar,“ sagði Brett Veach framkvæmdastjóri Kansas City Tekur vinnuna með sér í fríið Það vantar ekki áhugann hjá þeim gamla. Þegar hann fer í frí þá tekur hann vinnuna með sér. Hann eyðir nokkrum tímum á dag í fótbolta hvort sem það er að horfa á myndbönd eða teikna upp möguleg leikkerfi. „Ég nýt þess. Sumir lesa bækur. Ég skoða leikkerfi,“ sagði Reid. San Francisco 49ers og Kansas City Chiefs mætast í leiknum um Ofurskálina í ár en Super Bowl hátíðin er að sjálfsögðu sýnd beint á Stöð 2 Sport 2. Útsendingin hefst klukkan 22.00 á sunnudaginn með upphitun fyrir leikinn en leikurinn sjálfur byrjar síðan upp úr klukkan 23.30. Top 3 cheeseburgers for Andy Reid #MakeJournalismGreatAgain pic.twitter.com/AhQWRGWnTT— Will Compton (@_willcompton) February 6, 2024
NFL Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Sjá meira