Lífið

Einn keppandi sendur heim fyrir loka-einvígið

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Idol-stjarna Íslands verður krýnd annað kvöld.
Idol-stjarna Íslands verður krýnd annað kvöld.

Það er komið að því. Ný Idolstjarna Íslands verður krýnd annað kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni. Anna Fanney, Björgvin og Jóna Margrét standa eftir og keppast um að verða næsta Idol-stjarna Íslands. 

Þema þáttarins er „Þetta er ég“ og mun hver keppandi flytja eitt lag að eigin vali. Að því loknu verður opnað fyrir símakosninguna og þeir tveir keppendur sem hljóta flest atkvæða halda leik áfram. Sá sem fær fæst atkvæði verður sendur heim.

Þeir tveir keppendur sem standa eftir spreyta sig á sigurlagi keppnninnar „Skýjaborgir.“ Lagið er eftir Fjallabróðurinn Halldór Gunnar Pálsson, Baldvin Hlynsson og Unu Torfadóttur. 

Þátturinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2. 

Hér að neðan má sjá lagaval keppenda á úrslitakvöldinu:

Björgvin: 900-9007

When You Were Young – The Killers

Skýjaborgir – Baldvin Hlynsson, Halldór Gunnar Pálsson og Una Torfadóttir
Björgvin - 900-9007GOTTI B

Anna Fanney – 900-9008

Back To Black – Amy Winehouse

Skýjaborgir – Baldvin Hlynsson, Halldór Gunnar Pálsson og Una Torfadóttir
Anna Fanney – 900-9008GOTTI B

Jóna Margrét – 900-9006

Stronger – Kelly Clarkson

Skýjaborgir – Baldvin Hlynsson, Halldór Gunnar Pálsson og Una Torfadóttir
Jóna Margrét – 900-9006Gotti B

Tengdar fréttir

Nærmynd af Idol þríeykinu: „Við erum öll búin að sigra“

Spennan magnast í Idolinu og eftir standa þrír. Næstkomandi föstudagskvöld nær spennustigið svo hámarki þegar lokaþáttur Idolsins verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 og í ljós kemur hver stendur uppi sem sigurvegari. Anna Fanney, Björgvin Þór og Jóna Margrét keppast um sigurinn en Lífið á Vísi fékk að kynnast þeim örlítið nánar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.