Benóný Breki tryggði KR sigur í uppbótartíma Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. febrúar 2024 20:54 Benóný Breki Andrésson reyndist hetja KR-inga í kvöld. Vísir/Hulda Margrét KR vann dramatískan 2-3 sigur er liðið heimsótti HK í fyrstu umferð Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld.
KR og HK leika í riðli 3 í A-deild Lengjubikarsins. Keppni í Lengjubikar karla hófst í gær, en leikur liðanna í kvöld var fyrsti leikur þeirra riðils. Benóný Breki Andrésson kom KR-ingum yfir strax á sjöundu mínútu leiksins og reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins. Staðan því 0-1 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Arnþór Ari Atlason jafnaði hins vegar metin fyrir HK á 60. mínútu, en Sigurður Bjartur Hallson kom gestunum yfir á ný með marki á 79. mínútu. Forysta KR-inga entist þó ekki lengi því Birkir Breki Burknason jafnaði metin fyrir HK á 82. mínútu og stefndi allt í að liðin myndu skipta stigunum á milli sín. Það var svo ekki fyrr en að komið var í uppbótartíma sem sigurmarkið leit loks dagsins ljós, en þar var á ferðinni Benóný Breki Andrésson með sitt annað mark sem tryggði KR-ingum dramatískan sigur. KR-ingar eru þar með komnir með þrjú stig í riðlinum, en HK er enn án stiga.
KR HK Lengjubikar karla Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Segir Horner vera að trufla Ferrari Formúla 1 Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Golf Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti Fleiri fréttir UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bayern bjargaði andlitinu gegn neðri deildar liði Íslensku landsliðskonurnar allt í öllu í sigri Inter Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Dramatískur sigur og lið Sveindísar á mikilli siglingu Albert ekki meira með íslenska landsliðinu „Þetta er þorpið manns“ Myndaveisla: Ísland gerði svekkjandi jafntefli við Eistland Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael „Við eigum að vinna þessa leiki“ Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig „Úrslitin eru vonbrigði og leikurinn vonbrigði“ „Það erfiðasta í fótbolta er að skora mörk“ Sjá meira