Lífið

Hvítt teppi í stiganum og Sindri þorði ekki á það: „Fer aldrei í fram­kvæmdir aftur“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sindri var hrifinn af eign Brynju.
Sindri var hrifinn af eign Brynju.

Sindri Sindrason leit við hjá Brynju Dan í síðasta þætti af Heimsókn. Brynja er samfélagsmiðlastjarna, eigandi Extra Loppunnar og varaþingmaður Framsóknar og því nóg að gera hjá henni.

Brynja býr í Garðabænum ásamt unnusta sínum og þremur börnum en þegar Sindri mætti voru aðeins fjórir mánuðir liðnir frá því að parhúsið var nánast fokhellt.

Það sem vakti athygli Sindra var hvítt teppi á stigaganginum í húsinu og þorði hann ekki að fara niður stigann á skónum.

Einstaklega falleg eign í Garðabænum og má sjá brot úr síðasta Heimsóknarþætti hér að neðan.

„Ég fer aldrei í framkvæmdir aftur,“ sagði Brynja til að mynda í innslaginu og var hún alveg buguð eftir framkvæmdirnar.

Hér að neðan má sjá brot úr síðasta Heimsóknarþætti.

Klippa: Hvítt teppi í stiganum og Sindri þorði ekki á það





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.