Fimm handteknir í tengslum við líkfund í Mojave-eyðimörkinni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. janúar 2024 08:04 Þrátt fyrir að kannabis sé löglegt í Kaliforníu er það enn selt á svörtum markaði til að komast undan skattlagningu. epa/Etienne Laurent Lögregla í San Bernardino í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur handtekið fimm einstaklinga eftir að sex lík fundust á afskekktum stað í Mojave-eyðimörkinni.
Um var að ræða sex karlmenn sem höfðu verið skotnir til bana en einn þeirra virðist hafa hringt í neyðarnúmerið 911 áður en hann lést, sem varð til þess að líkin fundust við leit úr þyrlu. Búið er að bera kennsl á fjóra af mönnunum sex. Fjórir mannanna reyndust einnig hafa hlotið alvarlegan bruna en þess er ekki getið hvort það gerðist áður eða eftir að þeir voru skotnir. Fjögur líkanna fundust í þyrpingu nærri tveimur sundurskotnum bifreiðum. Eitt lík fannst inni í annarri bifreiðinni og annað skammt frá. Lögregluyfirvöld í San Bernadino segist fullviss um að málið tengist viðskiptum með maríjúana en þrátt fyrir að kannabis hafi verið gert löglegt í Kaliforníu árið 2016 er enn umtalsverður svartur markaður með efnið til að forðast skattlagningu. Lögregla telur víst að mennirnir fimm sem nú eru í haldi lögreglu hafi mætt til fundar við mennina sex og skotið þá til bana. Búið er að leggja hald á átta skotvopn, sem verða rannsökuð sem möguleg morðvopn. Yfirvöld neituðu að svara því hvort atvikið tengdist gengjum eða fíkniefnahópum en sögðust telja um að ræða skipulagða glæpastarfsemi.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira