Lífið

Myndaveisla: Raf­mögnuð spenna böðuð í Hollywood glamúr

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Þriðji þáttur af Idol live þáttunum var sýndur í beinni útsendingu á föstudagskvöldið.
Þriðji þáttur af Idol live þáttunum var sýndur í beinni útsendingu á föstudagskvöldið. SAMSETT

Þriðji þáttur af Idol þáttunum sem sýndir eru í beinni útsendingu fór fram síðastliðið föstudagskvöld. Sex keppendur stigu á svið í Idol höllinni að Fossaleyni en einungis fjórir stóðu eftir í lok kvölds. 

Þema kvöldsins var Hollywood og keppendur fluttu því hvern stórsmellinn á fætur öðrum. Spennan var rafmögnuð þegar í ljós kom að tveir keppendur yrðu sendir heim. Örlög keppenda voru í höndum áhorfenda og var Herra hnetusmjör ekki par sáttur við úrslitin þegar í ljós kom að Elísabet væri einn þeirra keppenda sem þyrfti að kveðja. 

Hún flutti ódauðlega smellinn I Wanna Dance With Somebody með Whitney Houston. Ólafur Jóhann söng einnig sitt síðasta í þessari Idol seríu en hann flutti lagið Wherever You Will Go með hljómsveitinni The Calling

Nú eru tveir þættir eftir af Idolinu en næsti þáttur verður undanúrslitakvöldið og seldist upp á það á þremur mínútum.

Kvöldið einkenndist af mikilli tónlistargleði sem og Hollywood glamúr eins og þessar myndir sýna: 

Stefán Óli tók ballöðuna My Heart Will Go On með Celine Dion.Vísir/Hulda Margrét
Ólafur Jóhann var í glansandi Hollywood buxum. Hulda Margrét/Vísir
Anna Fanney rokkaði silfurstígvél og flutti lagið I‘ll Never Love Again með Lady Gaga úr kvikmyndinni A Star is Born. Hulda Margrét/Vísir
Elísabet dansaði um sviðið í rauðum pallíettukjól. Vísir/Hulda Margrét
Útvarpsmaðurinn Gústi B hélt uppi stemningunni í auglýsingahléum og ræddi meðal annars við Birgittu og Rakel, sem voru í topp átta í þessari seríu. Vísir/Hulda Margrét
Jóna Margrét tengdist áhorfendum þegar hún flutti lagið The Story með Sara Ramirez. Vísir/Hulda Margrét
Ólafur Jóhann stóð beinn í baki eftir að úrslitin komu í ljós og brosir inn í framtíðina. Vísir/Hulda Margrét
Björgvin flutti lagið Accidentally In Love með Counting Crows. Vísir/Hulda Margrét
Anna Fanney og Jóna Margrét komust báðar áfram. Vísir/Hulda Margrét
Elísabet og Sigrún Ósk.Vísir/Hulda Margrét
Það er alltaf stutt í gleðina hjá dómurunum. Vísir/Hulda Margrét
Spennuþrungin stund á sviðinu þegar í ljós kom að Elísabet væri í neðstu þremur. Vísir/Hulda Margrét
Gleði, sorg, léttir og stress blandast allt saman í eitt þegar úrslit Idolsins eru tilkynnt. Vísir/Hulda Margrét
Keppendurnir eru orðnir mjög góðir vinir en hér má sjá Elísabetu, Ólaf Jóhann og Björgvin í faðmlögum. Vísir/Hulda Margrét
Falleg og einlæg stund hjá keppendunum. Vísir/Hulda Margrét
Þessir ungu Idol aðdáendur voru í góðum gír. Vísir/Hulda Margrét
Stefán Óli, Ólafur Jóhann og Björgvin knúsuðu hvern annan.Vísir/Hulda Margrét
Rakel María förðunarfræðingur heldur sér alltaf á tánum og lagar hér förðun Birgittu Haukdal. Vísir/Hulda Margrét
Áhorfendur í sal voru í miklu stuði. Vísir/Hulda Margrét
Idol crewið fylgdist spennt með á hliðarlínunni.Vísir/Hulda Margrét
Spennan leyndi sér ekki.Vísir/Hulda Margrét

Tengdar fréttir

Bríet táraðist

Í Idol-keppni föstudagskvöldsins var kvikmynda- og sjónvarpsþáttaþema og áttu keppendur að velja sér lag úr þeim flokki.

Myndaveisla: Túbering, glingur og 80's múndering

Annar þáttur af Idol var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 síðastliðinn föstudag. Sjö keppendur stigu þar á svið en aðeins sex komust áfram í lok kvölds.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.