Lífið

Myndaveisla: Túbering, glingur og 80's múndering

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stemmningin var gríðarlega í Idol-hölli að Fossaleyni síðastliðið föstudagskvöld. Sex keppendur standa nú eftir og mæta aftur til leiks næstkomandi föstudag.
Stemmningin var gríðarlega í Idol-hölli að Fossaleyni síðastliðið föstudagskvöld. Sex keppendur standa nú eftir og mæta aftur til leiks næstkomandi föstudag.

Annar þáttur af Idol var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 síðastliðinn föstudag. Sjö keppendur stigu þar á svið en aðeins sex komust áfram í lok kvölds.

Þema kvöldsins var níundi áratugurinn og keppendur fluttu af því tilefni 80s-lög sem endurspegluðu áratuginn.

Eins og fyrsta kvöldið voru örlög keppenda í höndum áhorfenda en ekki dómara og munu úrslit næstu þátta Idolsins ráðast í símakosningu.

Þegar niðurstaða úr símakosningunni var kynnt kom í ljós að það var söngkonan Birgitta sem þurfti að taka pokann sinn. Hún flutti ódauðlega hittarann Holding Out For a Hero sem Bonnie Tyler samdi fyrir myndina Footloose.

Birgitta fékk afar jákvæða umsögn frá dómurunum sem voru ánægðir að sjá hana demba sér í rokkið.

Líkt og eftirfarandi myndir gefa til kynna var gríðarleg stemmning í Idol-höllinni að Fossaleyni síðastliðið föstudagskvöld.

Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B
Gotti B

Idol-stjarnan Saga Matthildur Árnadóttir frumflutti lagið Hvaða sögu viltu fá? í beinni útsendingu á föstudaginn. En lagið er fyrsta smáskífa hennar af væntanlegri stuttskífu plötu. 

Gotti B

Tengdar fréttir

Þessi keppandi var sendur heim úr Idolinu

Annar þáttur Idolsins í beinni útsendingu fór fram í Idolhöllinni í kvöld. Þátturinn var æsispennandi, sjö keppendur mættu til leiks en aðeins sex komust áfram í lok kvölds.

Seldist upp á nokkrum mínútum

Miðasala fyrir úrslitakvöld Idol í næstu viku opnaði eftir þáttinn í föstudagskvöld, eða um klukkan 21. Samkvæmt Tix.is seldist upp á nokkrum mínútum en um 450 miðar voru í boði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.