Heimahjúkrun á Akureyri – kraftmikill og metnaðarfullur vinnustaður HSN 29. janúar 2024 10:14 Fjölbreyttur hópur starfsfólks vinnur hjá heimahjúkrun HSN á Akureyri sem brennur fyrir málefni heimahjúkrunar og sinnir að jafnaði 350 skjólstæðingum á Akureyri og í nágrenni Akureyrar. Heimahjúkrun á Akureyri er metnaðarfullur vinnustaður staðsettur í hjarta Akureyrar. Þar vinnur fjölbreyttur hópur starfsfólks sem brennur fyrir málefni heimahjúkrunar og sinnir að jafnaði 350 skjólstæðingum á Akureyri og í nágrenni Akureyrar.
Heimahjúkrun vinnur í teymum sem eru samsett af hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum auk þess sem iðjuþjálfar og öldrunarsálfræðingur vinna þvert á öll teymin. „Heimahjúkrun er yfirleitt tímabundin þjónusta sem veitt er meðan þörf er á hjúkrun,“ segir Eva Björg Guðmundsdóttir, deildarstjóri heimahjúkrunar Akureyrar hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. „Gert er ráð fyrir að þjónustan hætti þegar meðferð lýkur, heilsufarsleg vandamál hafa verið leyst eða þeim komið í viðunandi horf og er þá skjólstæðingur útskrifaður.“ Heimahjúkrun felur því hvorki í sér fasta viðveru eða yfirsetu inn á heimilum skjólstæðinga né sinnir hún heimilisstörfum eða útréttingum fyrir þá sem hún þjónar. Þjónusta heimahjúkrunar heyrir undir Heilbrigðisstofnun Norðurlands, eða HSN. Eva Björg segir markmið heimahjúkrunar að gera skjólstæðingum kleift að búa sem lengst á eigin heimili þrátt fyrir veikindi, heilsubrest eða skerta færni. „Það er algengur misskilningur að heimahjúkrun sinni eingöngu eldri skjólstæðingum. Þvert á móti á þjónusta heimahjúkrunar erindi við skjólstæðinga á öllum aldri og á öllum stigum sinna veikinda.“ Í raun má segja að heimahjúkrun verði oft á tíðum miðjan í þjónustu við skjólstæðinga. „Til dæmis eru samskipti við Sjúkrahúsið á Akureyri, heimahlynningu, hjúkrunarheimili, stuðnings/stoðþjónustu og endurhæfingu daglegt brauð og heimahjúkrun sinnir hjúkrun og annarri starfsemi sinni til móts við þessa aðila. Teymisvinna innan heimahjúkrunar kemur þarna sterk inn en mikil áhersla er lögð á öflug, þverfagleg teymi og faglegt starf.“ Þannig séu verkefni heimahjúkrunar líka mjög fjölbreytt en starfsfólk hennar sinnir ekki bara ýmiskonar almennri umönnun og hjúkrun heldur líka mjög sérhæfðri og flókinni. „Þróunin síðustu ár hefur verið sú að sérhæfingin verður alltaf meiri og meiri og því mikil þörf og tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga með fjölbreytta þekkingu og bakgrunn í starfsmannahóp heimahjúkrunar.“ Heimahjúkrun HSN á Akureyri er sólahringsþjónusta, en á öðrum starfsstöðvum HSN er ekki boðið upp á sólahringsþjónustu. Stöðugar nýjungar hafa átt sér stað ár hvert í heimahjúkrun með aukinni þörf á heimahjúkrun að sögn Evu Bjargar. „Við erum stöðugt að horfa fram á veginn og skoða hvernig við getum nýtt velferðartæknina betur og þróað með t.d. háskólasamfélaginu og hvaða velferðartækni er í boði og er verið að þróa. Núna erum við t.d. í samstarfi við meistaranema í Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Akureyri um þróun velferðartækni.“ Það má því með sanni segja að heimahjúkrun á Akureyri bjóði upp á margbreytilegt starfsumhverfi en fyrir utan teymisvinnu er mikil áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og með sveigjanleika í starfi. „Það er einnig mikið lagt upp úr samskiptum og samvinnu, gleði og jákvæðni. Starfsfólk heimahjúkrunar er þannig samhentur hópur sem býr til gott andrúmsloft og góðan starfsanda í kringum sig.“ Öll áhugasöm eru hvött til að kynna sér þau störf sem eru í boði hjá heimahjúkrun á Akureyri og eiga þannig möguleikann á að bætast í öflugan og skemmtilegan starfsmannahóp. Nánari upplýsingar á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.
Heilsa Mest lesið Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Allt að 1500 króna munur á jólabókunum milli verslana Neytendur Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira