Toppliðið jók forskot sitt á toppi deildarinnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. janúar 2024 18:25 Diogo Jota var allt í öllu hjá Liverpool í dag. Lewis Storey/Getty Images Eftir markalausan fyrri hálfleik á Vitality-vellinum þá skoraði topplið ensku úrvalsdeildarinnar, Liverpool, fjórum sinnum og vann gríðarlega sannfærandi útisigur á Bournemouth. Fyrri hálfleikur Bournemouth og Liverpool í dag var hreinlega hundleiðinlegur enda skapaði hvorugt lið sér svo gott sem eitt almennilegt marktækifæri. Það átti heldur betur eftir að breytast í síðari hálfleik en það tók gestina frá Bítlaborginni rétt rúmar þrjár mínútur að brjóta ísinn. Darwin Núñez skoraði þá með fínni afgreiðslu eftir laglega sendingu frá Diogo Jota. Það var svo Jota sjálfur sem skoraði annað og þriðja mark Liverpool. Það fyrra eftir sendingu frá varamanninum Cody Gakpo og hið síðara eftir sendingu frá hægri bakverðinum Conor Bradley. Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma lyfti Joe Gomez boltanum inn á teig þar sem Núñez rak stóru tána í knöttinn og þaðan rann hann í netið. Staðan orðin 0-4 og reyndust það lokatölur leiksins. 10+10 - Darwin Núñez is the first Premier League player to register at least 10 goals and 10 assists in all competitions this season. Perfect. pic.twitter.com/J8CH7POUqB— OptaJoe (@OptaJoe) January 21, 2024 Sigurinn þýðir að Liverpool komið með 48 stig á toppi deildarinnar. Manchester City kemur þar á eftir með 43 stig og leik til góða. Bournemouth er í 12. sæti með 25 stig. Níu frá fallsæti og 15 frá Evrópusæti. Enski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti