Fyrsta stikla annarrar þáttaröð hinna geysivinsælu þátta House of Dragon, sem gerast í heimi Krúnuleikana var sýnd í dag og kemur hún út næsta sumar.
Einnig mun fjórða þáttaröð The Boys koma út á næsta ári og var stikla úr henni gefin út í dag. Þættirnir fjalla um myrkari hliðar ofurhetjanna og hafa notið mikilla vinsælda.
Reacher fær nýja þáttaröð seinna í mánuðinum og er hægt að sjá sýnishorn úr henni hér fyrir neðan.
Þá bíða margir óþreyjufullir eftir þáttunum Fallout sem byggja á heimi samnefndra tölvuleikja úr smiðju Bethesda. Fyrsta stikla þáttanna var birt í dag og koma þeir út í apríl á næsta ári.
Það eru þó ekki einu fréttirnar úr heimi sjónvarpsþátta byggðra á tölvuleikjum þar sem fyrsta stikla annarrar þáttaraðar Halo var birt í dag. Þættirnir gerast í heimi Halo-tölvuleikjanna sem eru lesendum eflaust mörgum kunnugir.