Lífið

Auður kynnir kærustuna og styrkir Palestínu með nýju lagi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Lagið Í hjartanu yfir hafið kom út í dag. 
Lagið Í hjartanu yfir hafið kom út í dag.  Auðunn Lúthersson

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, gaf út lagið Í hjartanu yfir hafið í dag og rennur allur ágóði af streymi lagsins til góðgerðarmála í Gasa. Helmingur ágóðans fer til félagsins Ísland Palestína og hinn til Lækna án landamæra.

„Styrkurinn er fyrst og fremst táknrænn. Svona streymisupphæðir eru óttalegt smotterí. Lagið samdi ég á Degi íslenskrar tungu og ég tók það upp samdægurs. Viku síðar er lagið komið út,“ segir Auðunn. 

Upptaka, hljóðblöndun og undirleikur er unninn af Auðunni sjálfum.

„Það er hræðilegt að fylgjast með átökunum og mann langar að geta gert eitthvað. Út frá ráðaleysinu og sorginni fæðist þetta lag. Þetta er áminning um hvað við sem höfum hreint vatn, húsaskjól og mat eigum margt að vera þakklát fyrir,“ segir hann.

Kynnir kærustuna fyrir Íslandi

Auðunn hefur í mörgu að snúast en hann er að undirbúa tónleika sem fara fram í Iðnó þann 16. desember næstkomandi. Uppselt er á tónleikana. Cassandra, kærasta Auðuns, kemur með honum til landsins þar sem hann stefnir á að kynna hana fyrir landi og þjóð. 

Parið er búsett í Los Angeles þar sem kynni tókust með þeim. Hann birti fallegar myndir af kærustunni á Instagram á dögunum. Ef þær birtast ekki að neðan er ráð að endurhlaða síðunni.

Auðunn lét gamlan draum rætast í byrjun árs þegar hann flutti til Los Angeles.

„Ég er þakklátur fyrir að vera kominn út og er spenntur fyrir framhaldinu þar sem ég er sífellt að kynnast nýju hæfileikaríku fólki,“ sagði Auðunn á dögunum í samtali við Vísi. Hann starfar við lagasmíð og framleiðslu dag frá degi.


Tengdar fréttir

Auður fann ástina erlendis

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, þekktur undir listamannanafninu Auður, er kominn á fast. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.