Lífið

Sam­loka að hætti hel­vítis kokksins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ívar er snillingur í eldhúsinu.
Ívar er snillingur í eldhúsinu.

Ívar Örn Hansen hefur heldur betur slegið í gegn sem Helvítis kokkurinn í stórskemmtilegum matreiðsluþáttum sem hafa verið sýndir á Stöð 2+ og á Vísi.

Nú þegar jólin eru framundan þá vill fólk eflaust ekki borða jólamat í öll mál. Sindri Sindrason leit við hjá Ívari á dögunum í Íslandi í dag og fékk að fylgjast með því þegar hann reiðir fram dýrindis samloku.

Fyrir þessi jól er Ívar að gefa út bókina Helvítis matreiðslubókin og einnig selur hann sultur undir merkjum helvítis kokksins sem þykja nokkuð vinsælar.

Hér að neðan má sjá brot úr innslaginu en áskrifendur Stöðvar 2 og Stöðvar 2+ geta séð það inni á veitum Stöðvar 2.

Klippa: Samloka að hætti helvítis kokksins





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.