Fótbolti

„Tæki­­færi fyrir okkur að sanna að við getum gert góða hluti saman“

Aron Guðmundsson skrifar
Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta var til viðtals eftir æfingu liðsins í gær á José Alvalade leikvanginum í Lissabon þar sem leikur kvöldsins gegn Portúgal í undankeppni EM 2024 fer fram.
Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta var til viðtals eftir æfingu liðsins í gær á José Alvalade leikvanginum í Lissabon þar sem leikur kvöldsins gegn Portúgal í undankeppni EM 2024 fer fram. Vísir

Åge Hareide, lands­liðs­þjálfari ís­lenska karla­lands­liðsins í fót­bolta segir loka­leik liðsins í undan­keppni EM 2024 í kvöld, gegn topp­liði Portúgal á úti­velli, vera kjörið tæki­færi fyrir leik­menn liðsins til þess að sanna að þeir geti gert góða hluti saman. Ís­land mætir til leiks með þungt tap fyrir Slóvakíu á bakinu og enga mögu­leika á að komast upp úr riðlinum. Sigur Portúgal í kvöld mun sjá til þess að liðið vinnur riðilinn með fullt hús stiga.

Aron Guðmundsson skrifar frá Lissabon

Búist er við því að heima­menn muni troð­fylla José Al­vala­de leik­vanginn í Lissabon í kvöld þegar að Portúgal og Ís­land mætast. Búið er að troða portúgölskum fánum í hvert einasta sæti vallarins og skipu­leggja veg­lega sigur­há­tíð eftir leik til að fagna EM sæti Portúgal.

Frammi­staða ís­lenska lands­liðsins í síðasta leik gegn Slóvakíu var langt í frá sann­færandi og hefur þjálfara­t­eymi liðsins nú fengið smá tíma til að rýna í það sem gekk á þar.

Þurfa að takmarka mistökin

„Þetta var leikur eins og við var að búast frá Slóvakíu. Þeir herjuðu af miklum krafti á okkur. En þegar að við komumst einu marki yfir fannst okkur við vera ná betri stjórn á leiknum og á þeim tíma­punkti var and­stæðingurinn ekki að skapa sér nein færi af ráði. Þeir fengu þó horn­spyrnur og því miður í fyrsta markinu fer boltinn á milli lappanna á Al­fonsi á fjær­stönginni. 

Það er snefill af ó­heppni sem verður til þess að við fáum þannig mark á okkur. Svo er á­kvörðun í VAR-kerfinu sem fellur gegn okkur í örðu markinu rétt fyrir lok fyrri hálf­leiks. Ég tel að sú á­kvörðun hafi ollið miklum pirringi meðal leik­manna.“

Frá leiknum gegn Slóvakíu á dögunum í BratislavaVísir/Getty

Seinni hálf­leikurinn sem fylgdi í kjöl­farið hafi alls ekki verið góður hjá liðinu.

„Við byrjuðum hann skelfi­lega. Fengum á okkur tvö mörk og þá var allt okkar leik­plan fokið út um gluggann. Við þurfum að gera eitt­hvað í þessum mis­tökum sem við erum að gera okkur seka um. Þetta er ekki gott.

Stundum líður manni eins og maður sé að taka skref fram á við en svo tekur maður tvö aftur á bak. Ég veit þó að til að koma á stöðug­leika í liðinu þurfum við að æfa meira, vera með stöðugri lands­liðs­hóp.

Allir bestu leik­menn okkar verða að vera til taks vegna þess að leik­mennirnir sem við höfum úr að velja í lands­liðið eru ekki svo margir. Ég tel okkur hins vegar búa yfir sterkum leik­manna­hóp þegar að allir eru heilir heilsu.“

Þurfa að vera hreinskilnir með það

Liðið þurfi að halda á­fram að leggja á sig vinnuna.

„Það er langt í mars­mánuð núna en þessi tími mun líða hratt. Vonandi verða allir klárir í mars vegna þess að þegar að við erum upp á okkar besta þá lítum við mjög vel út. Úr­slitin hafa kannski ekki verið með okkur í liði og stundum lítur þetta hræði­lega út, eins og í seinni hálf­leik á móti Slóvakíu, við verðum bara að vera hrein­skilnir með það. 

En við þurfum að halda á­fram að leggja hart að okkur. Eitt af vanda­málum þess að vera með lands­lið að þú ert aldrei með mikinn tíma á æfinga­vellinum með liðið. Við þurfum því að vonast til að þetta muni koma heim og saman.“

Frá leiknum gegn Slóvakíu á dögunum í BratislavaVísir/Getty

Horfa í síðasta leik gegn Portúgal

Einn af betri leikjum Ís­lands í undan­keppninni var akkúrat gegn Portúgal á Laugar­dals­velli síðast­liðið sumar. Leikur sem liðið lítur til fyrir leik kvöldsins.

„Á móti Portúgal heima áttum við mjög góðan leik. Varnar­lega vorum við mjög skipu­lagðir en vorum svo ó­heppnir undir lokin að fá þessa VAR-á­kvörðun gegn okkur. Ég er mjög á­nægður með þann leik hjá okkur og inn í leik kvöldsins munum við koma með sömu nálgun, sama hugar­far.“

Sammála gagnrýnendum

Eftir tapið gegn Slóvakíu mátti greina mikla ó­á­nægju með spila­mennsku liðsins heima fyrir og var haft orð á því að liðið væri með þessu að taka skref aftur á bak. Hvað segirðu við því?

„Já þetta var skref aftur á bak. Sér í lagi ef við horfum á spila­mennskuna í seinni hálf­leik. Sumir dagar eru svona. Ég hafði á orði að þetta væri svartur fimmtu­dagur fyrir Ís­land og hann var það. Þetta er pirrandi því við gerðum skelfi­leg mis­tök, leyfðum and­stæðingnum að vinna boltann á hættu­legum stöðum.

Frá leiknum gegn Slóvakíu á dögunum í BratislavaVísir/Getty

„Í fyrri hálf­leik finnst okkur samt, þrátt fyrir að Slóvakía hafi verið meira með boltann eftir að við komumst yfir, við hafa verið með á­gæt­a stjórn á leiknum. En svo eru á­kveðnir þættir leiksins sem maður getur ekki haft stjórn á.

Við höfum stjórn á okkar ein­stak­lings­gæðum, að gera ekki mis­tök á hættu­legum svæðum, og svo höfum við stjórn á leik­skipu­lagi okkar. Mér fannst við stundum fram­kvæma þessa hluti vel og stundum ekki. 

Í grunninn þurfum við bara að sýna meiri stöðug­leika sem lið og við þurfum einnig að geta valið um okkar bestu leik­menn til þess að geta keppt við þá bestu.“

Frá fyrri leik Íslands og Portúgal í undankeppninni á Laugardalsvelli.Vísir/Vilhelm Gunnarsson

Gott tækifæri

Að leiknum gegn Portúgal. Það yrði alltaf til mikils að ætlast að næla í úr­slit gegn Portúgal en hvað viltu sjá frá þínu liði í þessum leik?

„Ég vil sjá gott skipu­lag. Við þurfum að sýna stöðug­leika í varnar­leik okkar og fram­kvæma hlutina hratt fram á við þegar að við vinnum boltann. Við búum að góðri reynslu frá leik okkar gegn Portúgal fyrr á árinu á Laugar­dals­velli. Þetta er gott tæki­færi fyrir okkur að sanna að við getum gert góða hluti saman. Ég hef talað um það við leik­mennina. Að gott skipu­lag sé á okkar leik, það mun skipta höfuð­máli í þessum leik.“

Leikur Portúgal og Íslands í undankeppni EM 2024 verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og hefst upphitun klukkan 19:10. Leikar hefjast svo korter í átta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×