Martinez ber virðingu fyrir Íslandi: Nefnir tvo leikmenn sem hafa hrifið hann Aron Guðmundsson skrifar 19. nóvember 2023 13:00 Roberto Martinez, landsliðsþjálfari portúgalska karlalandsliðsins í fótbolta ber mikla virðingu fyrir íslenska landsliðinu og hugarfarinu sem einkennir leikmenn þess Vísir Roberto Martinez, landsliðsþjálfari portúgalska karlalandsliðsins í fótbolta, segir sitt lið bera virðingu fyrir íslenska landsliðinu en liðin mætast í lokaumferð undankeppni EM 2024 í Lisabon í kvöld. Á sínum degi geti íslenska landsliðið veitt hvaða liði sem er leik.
Aron Guðmundsson skrifar frá Lissabon. Aðspurður hverja hann teldi vera helstu styrkleika íslenska landsliðsins hafði Martinez þetta að segja: „Skipulagið og ég elska hugarfarið sem Ísland býr yfir sem lið. Við urðum öll ástfangin og hrifumst með tilfinningunum sem Ísland færði knattspyrnuheiminum á EM árið 2016 og ég tel leifar af því enn búa í liðinu," segir Martinez í samtali við Vísi. „Þetta er mjög áhrifaríkt lið sem getur verið mjög skeinuhætt í sínum aðgerðum. Liðið sýnir mikla ákefð í varnarleik sínum og getur skapað færi upp úr engu á skömmum tíma.“ Klippa: Roberto Martinez: Á sínum degi getur Ísland veitt hvaða liði sem er leik Hefur hrifist af Orra og Andra Lucasi „Við þurfum því að vera vel á verði á morgun. Þetta er lið sem við berum virðingu fyrir. Við vitum að þarna er að eiga sér stað uppbygging með nýjum leikmönnum. Leikmenn sem hafa nú þegar látið til sín taka, ég nefni sem dæmi Orra Stein Óskarsson og Andra Lucas Guðjohnsen. Þegar á öllu er á botninn hvolft vitum við að til þess að vinna þennan leik þurfum við að vera upp á okkar besta.“ Orri Óskarsson hefur komið vel inn í íslenska A-landsliðiðVísir/Hulda Margrét Kemur sú staðreynd, að Ísland hafi raunar aldrei verið í almennilegri baráttu um að komast upp úr þessum riðli, þér á óvart? „Þetta snýst á endanum alltaf um einstök úrslit hér og þar. Ég tel að úrslit liðsins til að mynda á móti Slóvakíu heima hafi verið mjög óheppileg. Þar var um að ræða leik sem Ísland átti skilið að vinna. Ef eitthvað er þá eru það svona úrslit, þessi stig sem þú missir af, sem verða þess valdandi að þú ert úr leik í baráttunni fremur en að verða þess valdandi að þú eigir séns. Á sínum degi getur þetta íslenska lið veitt hvaða liði sem er leik. Það hefur ekkert breyst.“ Að mörgu að huga fyrir EM Portúgal hefur fyrir löngu tryggt sér fyrsta sæti riðilsins og um leið EM sæti. Liðið hefur unnið alla sína leiki til þessa, skorað 34 mörk og aðeins fengið á sig tvö og getur með sigri á Íslandi í kvöld innsiglað magnað taplaust gengi sitt í undankeppninni. Hafandi nú þegar tryggt ykkur sæti á EM, ertu að nýta þetta tækifæri til þess að nýta leikmannahópinn betur í leit að fleiri valkostum eða muntu spila þínu besta liði? „Það er svolítið beggja blands. Það eru nokkrir sterkir leikmenn fjarverandi hjá okkur og aðeins þrír leikir á dagskránni hjá okkur fram að Evrópumóti næsta árs. Eins og þú getur ímyndað þér þá þurfum við að búa til samkeppni um stöður í liðinu hjá okkur, þurfum að mynda okkur skoðun á því hvaða 23 leikmenn munu ferðast með okkur á Evrópumótið. Við höfum verið að spila á einhverjum 33-34 leikmönnum undanfarið og því er þetta verkefni alltaf undirliggjandi hjá okkur. Við þurfum að sjá til þess að vera með okkar besta lið í höndunum og taka þar tillit til margra þátta. Framundan er krefjandi tímabil þar sem að leikmenn eru að spila margar mínútur með sínum félagsliðum í landsdeildunum þar sem og í öðrum Evrópukeppnum. Þetta eru allt þættir sem við tökum inn í jöfnuna og vonumst til að útkoma okkar vinnu skili sér í vel skipulögðu og stöðugu liði sem getur um leið ýtt undir bestu einstaklings hæfileika okkar leikmanna.“ Endurkoma Gylfa góðar fréttir Roberto Martinez á að baki margra ára feril í Englandi þar sem að hann þjálfaði meðal annars í ensku úrvalsdeildinni. Hann þekkir því vel til Gylfa Þórs Sigurðssonar sem spilaði lengi vel í deildinni og sneri í síðasta landsliðsverkefni aftur í íslenska landsliðið eftir um tveggja og hálfs árs fjarveru. Gylfi Þór er ekki með íslenska landsliðinu í yfirstandandi verkefni vegna meiðsla en Martinez segir endurkomu hans frábærar fréttir fyrir íslenska landsliðið. „Hæfileikar hans eru ótvíræðir og án efa er Ísland betra lið þegar að Gylfi Þór er innan raða þess. Það er frábært að sjá hann aftur inn á knattspyrnuvellinum, til að mynda það sem hann gerði í leik Íslands gegn Liechtenstein á dögunum. Hvað þetta varðar er endurkoma hans góðar fréttir fyrir íslenska knattspyrnu.“ Leikur Portúgal og Íslands í undankeppni EM 2024 verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og hefst upphitun klukkan 19:10. Leikar hefjast svo korter í átta.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Frank Mill er látinn Fótbolti Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Fótbolti Fleiri fréttir „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Orri Steinn fær portúgalska samkeppni Breiðablik og Víkingur vita hverjum þau mæta næst Rashford með sitt fyrsta mark fyrir Barcelona Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Barist um undirskrift Nunez Tómas Bent seldur til Skotlands Ronaldo vill gera Greenwood aftur að liðsfélaga „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Sjá meira