„Minnir áhorfandann á að við þurfum ekki að hlusta á allt“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 15. nóvember 2023 11:01 Listakonan og skartgripahönnuðurinn Hendrikka Waage stendur fyrir sýningunni Valkostir samtímans. Aðsend „Ég byrjaði mjög snemma að hafa áhuga á myndlist, eflaust um fjögurra ára aldur. Ég var mikill dundari og var alltaf að lita og teikna. Ég man ekki eftir mér öðruvísi,“ segir listakonan og skartgripahönnuðurinn Hendrikka Waage, sem stendur fyrir listasýningunni Valkostir samtímans. Sýningin er opin á föstudag og laugardag í Hannesarholti.
Frá London til Reykjavíkur „Ég er búin að vera að vinna að sýningunni yfir árið. Einnig verða nokkur málverk úr sýningu sem var haldin í sumar á vegum ArtChina gallery í London. Ég var svo heppin að fá inn í Hannesarholti, þessu dásamlega og sögulega húsi.“ Hendrikka Waage er alþjóðleg listakona sem er þekkt fyrir skartgripahönnun sína og lífleg listaverk sín. Í fréttatilkynningu segir að verk hennar kanni mannlegt form og blæbrigði upplýsingaóreiðu nútímans. „Með einstökum stíl innblásinn af alþjóðlegri reynslu hefur Hendrikka unnið sér inn viðurkenningu bæði í heimalandi sínu Íslandi og víðar. Í endalausu upplýsingastreymi nútímans býður Hendrikka Waage í ferðalag inn í heim sem hún kýs að nefna „Valkostir Samtímans“. Sýningin Valkostir Samtímans gerir atlögu að skilningarvitum þínum, ögrar sjónarhorni þínu og hvetur þig til að sigla um margbreytileika stafrænnar aldar með skýrleika.“ Meðal verka Hendrikku Waage á sýningunni.Hendrikka Waage Myndlistin endurspeglar hennar upplifun af ólíkum menningarheimum þar sem hún skyggnist inn í nútíðina og veltir fyrir sér hvernig heimurinn þróast í framtíðinni. „Ég verð að segja að ég sé sterka tengingu á milli málverkanna minna og skartgripanna. Sumar af konunum eru til dæmis með skartgripina á myndunum mínum. Þær eru einnig litríkar eins og steinarnir í skartgripunum mínum,“ segir Hendrikka en sterkir litir einkenna verkin. Kona með eitt eyra og eyrnalokk eftir Hendrikku.Hendrikka Waage Alltaf tengd Íslandi Aðspurð hvort það sé henni mikilvægt að halda tengingu við heimalandið sitt segir Hendrikka: „Já, ég er alltaf í mikilli tengingu við Ísland. Sonur minn, tengdadóttir og barnabarn búa eins og er á Íslandi sem og stórfjölskyldan. Mér finnst alltaf gaman að fá að sýna list mína á Íslandi.“ Guðjón Böðvarsson sonur Hendrikku og tónlistarmaður mun sjá um tónlistina á laugardaginn á milli klukkan 14:00 og 16:00. Hann mun meðal annars frumflytja lag sem hann samdi með Doctor Victori. Verk Hendrikku You are either Real or not real sem verður á sýningunni.Hendrikka Waage Ólíkir menningarheimar sameinast í listsköpuninni Hendrikka sækir innblásturinn í ýmsar áttir en hún hefur búið víða um heiminn. Listsköpun hennar vísar í alþjóðlega reynslu hennar og búsetu á Íslandi, Japan, Rússlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. Reynsla hennar og upplifanir í þessum ólíku menningarheimum sameinast í listsköpun hennar og vekur upp spurningar sem hver og einn finnur merkingu í. „Síðastliðin ár er ég búin að vera með einfalt mótíf af konum með eitt eyra. Alla daga streyma endalaust af upplýsingum til okkar úr öllum áttum og við erum heilaþvegin af hinu og þessu, þannig að ég ákvað að hafa einungis eitt eyra á þeim – til að minna áhorfandann á að við þurfum ekki að hlusta á allt. Núna er ég að mála og kynna stærri málverk sem eru unnin með akrýl litum og kýs ég að halda áfram með verurnar með eitt eyra. Sumar verurnar mínar eru með eins og slæðu fyrir hálfu andlitinu því það er svo margt í heiminum sem við tökum ekki eftir eða viljum ekki sjá.“ Hendrikka sækir innblástur til fjölbreyttra menningarheima en hún hefur búið og starfað víða um heiminn.Aðsend Baróninn sem Barónsstígur er kenndur við Þá leitar Hendrikka einnig í nærumhverfi sitt og nefnir skemmtilega sögu af verki sem hún kallar The Le Baron Carafe. „Karaflan sem ég mála í því verki er karafla sem ég erfði eftir foreldra mína sem var eitt sinn í eigu Baron Charles Francois Xavier Gauldree. Hann var oftast kallaður Baróninn á Hvítárvöllum og er Barónsstígur kenndur við hann. Ég notaði munstrið úr karöflunni sem innblástur í gerð Barón skartgripalínunnar minnar.“ Karaflan umrædda.Hendrikka Waage Sýningin opnar sem áður segir á föstudag í Hannesarholti og verður einnig opin á laugardeginum frá 14-16.
Myndlist Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Lífið Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Ísak og Karítas orðin foreldrar eftir bráðakeisara Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Bíó og sjónvarp Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Innlit í nýuppgerða íbúð Kára Sverris Lífið Fleiri fréttir Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Sjá meira