Lífið

Þor­geir Ást­valds skvetti vatns­glasi yfir sofandi Gústa B

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gústi átti ekki orð að Þorgeir hefði þetta í sér.
Gústi átti ekki orð að Þorgeir hefði þetta í sér.

Það fór heldur betur vel á meðal Gústa B og Þorgeiri Ástvalds þegar þeir tveir félagarnir bjuggu saman í nokkra daga og það í þáttunum Sambúðin á Stöð 2.

Báðir útvarpsmenn en annar þeirra var 46 ár í loftinu. Hinn er rétt skriðinn yfir tvítugt. Þættirnir Sambúðin hófu göngu sína á Stöð 2 á dögunum. Í þáttunum er fylgst með sex pörum sem saman sett eru af einni manneskju sem komin er á eftirlaunaaldur og annarri ungri manneskju um tvítugt.

Gústa B fór meðal annars með Þorgeir eða Togga eins og hann kallar hann í keilu, karaoke og margt fleira.

Þorgeir bauð aftur á móti Gústa með sér í heimsókn til tónlistarmannsins Bjartmars Guðlaugssonar en þeir eru bestu vinir. Saman tóku þeir þrír lagið. Það sem stóð mögulega upp úr var þegar Þorgeir átti að gera símaat í tónlistarmanninum Prettyboitjokko og bað hann um að gera endurgerð af laginu Ég fer í fríið.

Svo vakti Þorgeir Gústa einn morguninn með því að skvetta vatnsglasi yfir hann. 

Hér að neðan má sjá brot úr þætti gærkvöldsins en fyrir áskrifendur er hægt að sjá þáttinn í heild sinni á Stöð 2+.

Klippa: Þorgeir Ástvalds skvetti vatnsglasi á sofandi Gústa B.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.