Viðræður Ratcliffe og Glazer-fjölskyldunnar á lokametrunum Smári Jökull Jónsson skrifar 18. október 2023 21:01 Jim Ratcliffe verður líklega orðinn einn af eigendum Manchester United á næstu dögum. Vísir/Getty Búist er við að Jim Ratcliffe muni á næstu dögum ganga frá kaupum á 25% hlut í Manchester United fyrir 1,3 milljarða punda. Stjórnarfundur hjá Manchester United fer fram á morgun.
Kaup Ratcliffe hafa verið í deiglunni síðustu daga en um helgina bárust fréttir af því að Sjeik Jassim hafi dregið sig úr baráttunni um kaup á félaginu. Í kjölfarið var greint frá því að Glazer-fjölskyldan væri tilbúin að selja Jim Ratcliffe 25% hlut en Ratcliffe mun að öllum líkindum fá ákvarðanavald yfir knattspyrnutengdum málum hjá félaginu. „Þetta er mjög flókinn samningur en ég held að það sé þess vegna sem þetta er að taka aðeins lengri tíma en búist var við,“ segir Kaveh Solhekol fréttastjóri hjá Sky Sports. „Við erum að nálgast lokahluta viðræðanna og ég held að Jim Ratcliffe muni kaupa minnihluta til að byrja með.“ Það sem ýtir undir það að samningar séu á lokametrunum er að INEOS, fyrirtæki Ratcliffe, mun upplýsa eigendur hlutabréfa í félaginu um breytta stöðu á mánudaginn. Bloomberg fréttastofan greinir frá þessu. Á morgun er síðan á dagskrá stjórnarfundur hjá Manchester United en hann var þó ekki boðaður sérstaklega vegna sölunnar heldur um að ræða reglubundinn fund stjórnar. Fundirnir eru að hluta til rafrænir þar sem Glazer-fjölskyldan er að mestu búsett í Bandaríkjunum.
Enski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira