Dæmdur í leikbann fyrir dónaskap í garð dómara Smári Jökull Jónsson skrifar 4. október 2023 20:00 James ásamt Todd Boehly eiganda Chelsea. Vísir/Getty Fyrirliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni hefur verið dæmdur í eins leiks bann vegna slæmrar framkomu í garð dómara eftir tap Chelsea gegn Aston Villa í síðasta mánuði.
James var gerður að fyrirliða Chelsea í sumar en hann hefur nú þegar misst af átta leikjum á tímabilinu eftir að hafa meiðst á æfingu í ágúst. Hann var því ekki á meðal leikmanna liðsins í áðurnefndum leik gegn Aston Villa en það stoppaði hann þó ekki í því að eiga orðastað við dómarann að leik loknum. Þegar James mætti dómarateyminu á göngum Stamford Bridge lét hann Jarred Gillet og samstarfsmenn hans heyra það og enska knattspyrnusambandið var allt annað en sátt með framkomu James. Hann hefur nú verið dæmdur í eins leiks bann fyrir að nota óviðeigandi og móðgandi orð gagnvart dómarateyminu en James viðurkenndi brot sitt. James getur því ekki verið með liði Chelsea í leik liðsins gegn Burnley þó hann yrði orðinn heill heilsu. Chelsea hefur verið í vandræðum með hægri bakvarðastöðuna í fjarveru James en Malo Gusto fékk rautt í leiknum gegn Villa og fór í leikbann í kjölfarið. Marc Cucurella lék í hægri bakverðinum í sigurleiknum gegn Fulham en Levi Colwill leysti stöðuna hinum megin í fjarveru Ben Chilwell. Chelsea vonast til að James verði kominn aftur í liðið þegar liðið mætir Arsenal þann 21. október næstkomandi.
Enski boltinn Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Fótbolti Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Fótbolti Ekki rétt að hann hafi „risið upp frá dauðum“ Fótbolti Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Sjá meira