Kynntust á almenningssalerni Íris Hauksdóttir skrifar 1. júlí 2023 10:30 Unnur Elísabet Gunnarsdóttir danshöfundur ásamt listakonunni Sally Cowdin. Ásta Jónína Arnardóttir Unnur Elísabet Gunnarsdóttir danshöfundur og leikstjóri frumsýnir í dag verkið Release eða Létti sem hún skrifaði sjálf ásamt listakonunni Sally Cowdin. Verkið sprettur frá þeirra eigin upplifun og segir frá konum sem kynnast á almenningssalerni.
Verkið er meinhæðið en það hverfist um konur sem kynnast náið án þess að horfast nokkurn tímann í augu. Þær finna þó löngunina til þess að láta allt flakka. Stærstu leyndarmálin, vandræðalegar kynlífssögur, draumarnir og vonbrigðin fá að fljúga yfir skilrúmið og ekkert er heilagt. Þær horfast í augu við allt sem er geggjað og glatað og losa allan skítinn út til að búa til pláss fyrir eitthvað nýtt. Stærstu leyndarmálin, vandræðalegar kynlífssögur, draumarnir og vonbrigðin fá að fljúga í sýningunni Létti.Ásta Jónína Arnardóttir Þó svo að sýningin gerist inni á klósetti þá þýðir það ekki að hún fjalli bara um kúkasögur. Sagan er hjartnæm og fjallar um vináttu tveggja kvenna. Því hvar annars staðar tengjast konur sterkari böndum en á klósettinu. RELEASE / LÉTTIR er skrifað og flutt af Sally Cowdin og Unni Elísabetu og sprettur út frá þeirra persónulegu upplifunum. Með beittan húmor að vopni beina þær kastljósinu að mikilvægum málefnum sem sumum, sem ekki hafa leg, kunna að þykja óþægileg. Þær draga ekkert undan og deila því sem þær eru, voru og munu verða - og enda á því að láta allt flakka á fleiri veg en einn. Unnur Elísabet semur leikverkið og leikur sjálf aðalhlutverkið. Ásta Jónína Arnardóttir Þær Unnur Elísabet og Sally kynntust fyrst á Spáni þegar þær sátu saman á skólabekk í framhaldsnámi í leiklist með áherslu á skapandi skrif og leikstjórn. „Við tengdumst sterkum böndum frá fyrsta degi enda deildum við sömu ástríðu fyrir skapandi skrifum, leiklist og húmor,“ segir Unnur og heldur áfram. „Við gerðum flest verkefni saman í náminu og okkur fannst ótrúlega spennandi að rannsaka það hvernig hægt væri að segja frá vandræðalegum eða erfiðum sögum á léttan eða húmorískan hátt. Lærdómsríkt ferli Við byrjuðum að skrifa þetta verk í upphafi árs 2023 með intensívum skriflotum. Ég fór til Ítalíu í tíu daga til að æfa verkið og taka handritið enn lengra og Sally kom til Íslands í rúmar tvær vikur til þess að klára sýninguna. Þetta ferli hefur verið ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt og með innliti frá mörgum frábærum leikkonum og leikstjórum sem hafa komið og gefið okkur nótur. Við getum ekki beðið eftir því að frumsýna það núna á Reykjavík Fringe og fara síðan að ferðast með það um allan heim. Við byrjum í London og Edinborg.“ Áhugasamir geta hlaupið til og tryggt sér miða hér en aðeins er um tvær sýningar að ræða.
Menning Dans Mest lesið Fann ástina í örlagaríkum kjól Tíska og hönnun Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið Eitt rými sem má alls ekki mynda í Alþingishúsinu Lífið Centro-hjónin selja Beverly Hills-villuna Lífið Ástarsenur í viku tvö með stórleikaranum Lífið Framlag Kenýu til Óskarsverðlaunanna til sýnis á Ísafirði Lífið Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni „Rúrik Gíslason hefur sagt hæ við mig“ Lífið Keith sagður kominn með nýja kærustu Lífið Ertu sauður? Fimm ráð sem geta forðað þér frá hjarðhegðun Lífið Fleiri fréttir Heiður að fá að segja sögu kvennanna sem ruddu brautina „Kunna ekki að reikna, kunna svo ekki að skammast sín“ „Stefán er að hengja bakara fyrir að vera ekki smiður“ Sveppi, Ari Eldjárn og Valdimar minnast Róberts Arnar á tónleikum Sakar rithöfunda um að vilja forðast umræðuna Norræni skálinn á heimssýningunni í Osaka hlaut gullverðlaun Fólk vilji ekki bara sjá þetta á Instagram Með Banksy í stofunni heima Afgangsgler fær nýtt líf á sýningu í HAKK gallerý Segir strákum að hætta í bandarísku efni: „Eins og við séum í málhöltu úthverfi í Nebraska“ Innblástur frá handanheiminum Kynorkan alltumlykjandi hjá óléttu óperusöngkonunni Skortur á viðtengingarhætti hjá Laufeyju sé hluti af stærri þróun Uppselt á fimmtíu sýningar á Línu Langsokk Óbeisluð rómantík á örlagaríku stefnumóti Geislandi Vigdís og gat á skónum sem mátti ekki sjást Leikari, óperusöngvarar og sjómaður vilja stýra óperunni Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Gamla TR-húsinu umbreytt í Hlemm.haus: „Augljóst að þörfin var gríðarleg“ Nanna Rögnvaldardóttir hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Stórtónleikar og flugeldasýning að vanda á Ljósanótt Neðanjarðarpartý og menningarveisla fyrir öll vit Sjá meira