Lífið

Buðu grun­lausum mann­eskjum í tveggja ára af­mælis­fögnuð Play

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Fólkið var gríðarlega hissa enda ekki á hverjum degi sem heilt flugfélag býður í afmælisfögnuð.
Fólkið var gríðarlega hissa enda ekki á hverjum degi sem heilt flugfélag býður í afmælisfögnuð. Play

Flugfélagið Play bauð tveimur manneskjum af handahófi frá Washington DC í Bandaríkjunum til Íslands til þess að fagna tveggja ára afmæli flugfélagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu en myndbandið má sjá neðst í fréttinni.

Þar kemur fram að það eina sem þessar tvær manneskjur þurftu að gera til að fá að koma í þessa ferð var að svara nokkrum spurningum um Ísland, vera með gilt vegabréf og geta hoppað upp í flugvél samdægurs og fljúga til Íslands með Play til að upplifa margt af því besta sem landið hefur upp á að bjóða.

Tvö ár eru nú liðin frá allra fyrsta flugi félagsins en sú ferð var farin til London 24. júní árið 2021. Á þeim tíma hefur félagið stækkað úr þremur farþegaþotum árið 2021 í sex farþegaþotur árið 2022 og nú árið 2023 státar félagið af 10 Airbus A320/321 farþegaþotum. 

Flotinn er sá yngsti í allri Evrópu og flýgur félagið til hátt í fjörutíu áfangastaða í ár, þar af fimm í Norður Ameríku en þeir eru Toronto í Kanada og Boston, Baltimore, New York og Washington DC í Bandaríkjunum.

Í tilefni af þessum áfanga, að tvö ár séu liðin frá fyrsta fluginu, stökk Play til Washington DC með tökuteymi til að finna tvær manneskjur á götum höfuðborgar Bandaríkjanna sem gátu svarað laufléttum spurningum um Ísland og voru viljug til að koma með til Íslands til að fagna afmæli flugfélagsins.

Vegfarendum gekk misvel að svara spurningum og reyndu hvað þeir gátu að komast með í þessa ævintýraför en hér fyrir neðan má sjá myndbandið af því hvernig þetta tókst allt saman til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.