Klámstjarna sakar tilvonandi föðurinn Zion um framhjáhald Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. júní 2023 10:24 Nú er Zion kominn í klandur vegna kvennamála. Vonandi nær hann að leysa úr því fyrir næsta tímabil NBA-deildarinnar. Getty/Sean Gardner Körfuboltamaðurinn Zion Williamson og kærasta hans greindu frá því í vikunni að þau ættu von á stúlku. Degi síðar greindi klámstjarna frá því að hún ætti í ástarsambandi við Zion og nú hefur önnur kona bæst við.
Hinn 22 ára Zion Williamson er leikmaður New Orleans Pelicans. Hann var valinn númer eitt af liðinu í leikmannavali deildarinnar árið 2019 og var þá eftirsóttasta fyrsta val leikmannavalsins síðan LeBron James var valinn af Cleveland Cavaliers árið 2003. Undanfarin fjögur ár hefur Zion hins vegar ekki átt sjö dagana sæla. Hann hefur spilað lítið vegna meiðsla og hefur átt í erfiðleikum með að halda sér í formi. Nú virðist hann vera kominn í enn stærri vandræði. Varpaði skugga á óléttutilkynningu Á þriðjudaginn tilkynntu Zion og kærasta hans, Akheema, að þau ættu von á barni og buðu fjölskyldu og vinum í kynjaveislu í bakgarði á setri sínu. Þar kom í ljós að parið á von á stúlku. Á Youtube-síðu Akheemu má sjá fjögurra mínútna myndband frá kynjaveislunni. Þar ávarpar Zion ófædda dóttur sína og segir að foreldrar hennar muni alltaf elska hana. Hins vegar fékk parið ekki mikinn tími til að fagna fréttunum af því á miðvikudag birti Moriah Mills, fyrrverandi klámstjarna, röð tísta á Twitter þar sem hún sagðist eiga í ástarsambandi við Zion og sakaði hann um að halda framhjá sér. Zion ekki við eina konu kenndur Mills sagði þar að hún hefði átt í ástarsambandi með Zion í nokkuð langan tíma og þau hefðu síðast hist í New Orleans í síðustu viku. Því til stuðnings birti hún skjáskot af Snapchat af samskiptum þeirra tveggja á Twitter-síðu sinni. Mills sagði enn fremur að hún hefði ekki haft hugmynd um að hann ætti kærustu og hvað þá að sú væri ólétt. Þá sagði hún honum að biðja fyrir því að hún sjálf væri ekki ólétt þar sem hún væri ekki enn farin á blæðingar. Better pray I m not pregnant too because I m definitely late @Zionwilliamson— Moriah Mills (@moriahmillsss) June 7, 2023 Mills gengur síðan enn lengra og lýsir í miklum og grófum smáatriðum ástarlífi sínu þeirra Zion sem er ekki viðeigandi að birta hér. Jafnframt segist hún bera ábyrgð á því að Zion kom sér aftur í form, hún hafi hvatt hann til að verða næsta LeBron og barnsmóðir hans beri ábyrgð á þyngaraukningu körfuboltamannsins. I told you was gonna be the next king next to lebron I motivated you you bm is the reason you gained weight she toxic I hate this for you that honestly @Zionwilliamson you hurt me with this one I couldn t sleep last night — Moriah Mills (@moriahmillsss) June 7, 2023 Í gærkvöldi steig önnur kona fram og sagðist líka hafa átt í sambandi með Zion. Hún birti myndir af Zion sofandi og myndbönd af sjálfri sér á leikjum New Orleans. Hún fer hörðum orðum um Zion og segir hann vera kynlífssjúkling. Nahh Zion this is crazy pic.twitter.com/TbR4qTrDNg— Raps gen (@RaptorsGen) June 8, 2023 Zion hefur ekki brugðist við ásökununum oog virðist tilvonandi barnsmóðir hans ekki kippa sér upp við það. Hún fór sjálf á Twitter og gerði lítið úr málinu. Neðri útlimum Zion stofnað í hættu Fréttirnar af Zion hafa skiljanlega farið eins og eldur um sinu um körfuboltaheiminn. Fjölmiðlamaðurinn Stephen A. Smith, sem vinnur hjá ESPN, fjallaði um málið í kjölfar ásakana Mills. „Nafnið Zion Williamson bar á góma af því hann er greinilega að verða pabbi. Og manneskjan sem er að fara að gera hann að nýbökuðum föður, er ekki sama manneskja og var að tala um hann á samfélagsmiðlum,“ sagði hann í upphafi langs mónólógs um málið. „Stelpa að nafni Moriah Mills, nafngreindi hann og lýsti í smáatriðum nánum kynnum þeirra... Hún er klámstjarna!“ sagði hann síðan æstur. „Gaur, þú spilaði bara 29 leiki á síðasta ári! Og þú misstir af öllu tímabilinu fyrir það! Hvað í fjandanum tefur þig að verða hraustur? Jæja, nú veit ég hvað það er!“ sagði Smith eins og honum einum er lagið. Loks sagði hann að það væri greinilegt að neðri útlimum Zion hefði verið stofnað í hættu. Til skýringar á því orðagríni þá hefur Zion glimt við meiðsli í fótum. Hér má sjá mónólóg Smith í heild sinni. On the latest with Zion Williamson pic.twitter.com/HKQi4EUBCd— Stephen A Smith (@stephenasmith) June 7, 2023
NBA Bandaríkin Tengdar fréttir Zion ætlar ekki að bregðast neinum Zion Williamson, leikmaður New Orleans Pelicans, hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann kom fyrst inn í NBA deildina. Hann hefur glímt við ýmis meiðsli en virðist nú vera á batavegi og treystir Pelicans honum nægilega mikið til að gefa honum fimm ára samning upp á nærri 200 milljónir Bandaríkjadala. 7. júlí 2022 16:01 Zion framlengir við New Orleans Pelicans og ætti að eiga fyrir salti í grautinn Við höfum ekki fengið að njóta hæfileika Zion Williamson eins mikið og við vildum á fyrstu árum NBA ferils hans. New Orleans Pelicans hafa þrátt fyrir meiðslasögu kappans trú á því að hann geti leitt félagið til nýrra hæða og hafa opnað veskið upp á gátt fyrir hann. 4. júlí 2022 07:30 Bakslag hjá Zion: Spilar ekki fyrr en á nýju ári Það verður seint sagt að NBA-ferill Zion Williamson hafi verið dans á rósum til þessa. Frá því New Orleans Pelicans valdi Zion í nýliðavali deildarinnar árið 2019 hefur hann verið meira og minna meiddur. Hann mun ekki spila aftur fyrr en á næsta ári. 13. desember 2021 23:30 Mest lesið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Ógleymanleg upplifun á klósetti í norskum kastala Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Fleiri fréttir Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Sjá meira
Zion ætlar ekki að bregðast neinum Zion Williamson, leikmaður New Orleans Pelicans, hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann kom fyrst inn í NBA deildina. Hann hefur glímt við ýmis meiðsli en virðist nú vera á batavegi og treystir Pelicans honum nægilega mikið til að gefa honum fimm ára samning upp á nærri 200 milljónir Bandaríkjadala. 7. júlí 2022 16:01
Zion framlengir við New Orleans Pelicans og ætti að eiga fyrir salti í grautinn Við höfum ekki fengið að njóta hæfileika Zion Williamson eins mikið og við vildum á fyrstu árum NBA ferils hans. New Orleans Pelicans hafa þrátt fyrir meiðslasögu kappans trú á því að hann geti leitt félagið til nýrra hæða og hafa opnað veskið upp á gátt fyrir hann. 4. júlí 2022 07:30
Bakslag hjá Zion: Spilar ekki fyrr en á nýju ári Það verður seint sagt að NBA-ferill Zion Williamson hafi verið dans á rósum til þessa. Frá því New Orleans Pelicans valdi Zion í nýliðavali deildarinnar árið 2019 hefur hann verið meira og minna meiddur. Hann mun ekki spila aftur fyrr en á næsta ári. 13. desember 2021 23:30