Lífið

Brynjan bognaði inn í búkinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Brynplatan fór nánast öll inn í búk gínunnar þegar hún var skotinn með byssukúlunni stóru.
Brynplatan fór nánast öll inn í búk gínunnar þegar hún var skotinn með byssukúlunni stóru. Youtube/Kentucky Ballistics

Í Bandaríkjunum er frekar stór hópur manna sem leika sér að því að skjóta alls konar hluti með alls konar byssum og birta myndbönd af því á Youtube. Þessi hlið myndbandaveitunnar kallast í daglegu tali GunTube en þar hefur fjölmörgum áhugaverðum spurningum verið svarað í gegnum árin.

Scott Desields er einn þessara manna en hann reyndi nýverið að svara því hvort skotheld vesti gætu bjargað uppvakningum sem skotnir væru með einni af stærri byssukúlum heimsins. Á ensku er talað um „four bore“ byssu sem skýtur þessum kúlum en þær eru 25,4 millímetrar í þvermál.

Desields klæddi gínur, sem hannaðar eru til að líkjast mönnum og uppvakningum, í mismunandi brynvarnir í formi skotheldra vesta og skaut þær með mismunandi byssukúlum, þar á meðal risunum sem nefndir eru hér að ofan.

Hér má sjá nokkrar mismundani gerðir af byssuskotum. Lengst til vinstri er 9mm skot og skotið undir fingrinum er .50 kalibera skot. Stóra skotið lengst til vinstri er það sem myndbandið snýst um.youtube/Kentucky Ballistics

Í einu tilfelli fór kúlan ekki í gegnum stálplötuna sem myndaði brynvörnina heldur beygði hana saman og ýtti henni áfram inn í búk gínunnar.

Seinna meir skaut hann gínu í annars konar brynvörn með sömu byssu og er óhætt að segja að sú plata dugði ekki til.

Hér að neðan má sjá tilraun Desields en hann skýtur fyrst úr stóru byssunni eftir rúmar sex mínútur.


Tengdar fréttir

Fönguðu kraft púðurskota í „Slow Mo“

Þeir Gavin og Dan í „Slow Mo Guys“ hafa um árabil fangað hina ýmsu hluti með háhraðamyndavélum og hafa þeir til að mynda komið til Íslands og fangað íslenska náttúru. Í nýjasta myndbandi þeirra sýna þeir fram á kraft púðurskota.

Fönguðu sprengingu í vatni í fimm milljón römmum á sekúndu

Þeir Gavin og Dan í „Slow Mo Guys“ á Youtube hafa um árabil fangað hina ýmsu atburði með háhraðamyndavélum. Allt frá hefðbundnum hlutum eins og blöðrur að springa og diskar að brotna í sprengingar og skot úr fallbyssum. Nú fönguðu þeir sprengingu í vatni í fimm milljón römmum á sekúndu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.