Dortmund á toppi þýsku deildarinnar fyrir lokaumferðina Aron Guðmundsson skrifar 21. maí 2023 17:35 Sébastien Haller skoraði tvö af þremur mörkum Dortmund í dag. Liðið er í bílstjórasætinu fyrir lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar Vísir/Getty Borussia Dortmund situr á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar eftir leiki dagsins en liðið vann í dag 3-0 sigur á Augsburg á útivelli og leiðir titilbaráttuna með tveimur stigum þegar ein umferð er eftir.
Ljóst var fyrir leiki dagsins að Dortmund gæti með sigri á Augsburg komist upp fyrir ríkjandi Þýskalandsmeistara Bayern Munchen í þýsku úrvalsdeildinni. Bayern Munchen tapaði í gær 3-1 fyrir RB Leipzig. Leikmenn Dortmund voru því í dag staðráðnir í því að grípa gæsina á meðan að hún gafst. Á 58.mínútu leit fyrsta mark leiksins dagsins ljós. Það skoraði Sébastian Haller. Haller var síðan aftur á ferðinni á 84. mínútu er hann tvöfaldaði forystu Dortmund og á þriðju mínútu uppbótartíma venjulegs leiktíma bætti Julian Brandt við þriðja marki Dortmund og innsiglaði sigur liðsins. Toppsætið og örlögin eru því í höndum Dortmund fyrir lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Dortmund situr í 1.sæti deildarinnar með 70 stig, tveimur stigum meira en Bayern Munchen sem situr í 2. sæti. Dortmund tekur á móti Mainz 05 í lokaumferðinni á meðan að Bayern fer í heimsókn Köln. Leikirnir hefjast á sama tíma þann 27. maí næstkomandi.
Þýski boltinn Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitaleikur FA Cup, risamót í golfi og sjóðheit lið í Bestu Sport Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Körfubolti Stálheppinn þegar hann sló í hrífu og hélt toppsætinu Golf Fleiri fréttir „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Áhorfandi hljóp inn á og réðist á fyrrverandi leikmann Vals Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Stríðinn hrafn fluttur á Laugardalsvöll Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Bikarævintýri Fram heldur áfram Daníel Tristan skoraði í svekkjandi jafntefli Barcelona Spánarmeistari Markamaskínan Tokic og margfaldur Íslandsmeistari í 5. deildina Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó