Hannes kjörinn í stjórn FIBA Europe Smári Jökull Jónsson skrifar 21. maí 2023 11:31 Hannes er einn af tuttugu og þremur stjórnarmeðlimum FIBA Europe. FIBA Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, var í gær kjörinn í stjórn FIBA Europe sem er Evrópuhluti Alþjóðakörfuknattleikssambandsins.
Hannes S. Jónsson hafði gegnt starfi formanns KKÍ í sautján ár þegar hann lét af því starfi í mars síðastliðnum eftir að samþykkt var á þingi KKÍ að sami aðili gæti ekki gegnt starfi framkvæmdastjóra og formanns sambandsins. Guðbjörg Norðfjörð tók við formennsku en Hannes er áfram framkvæmdastjóri. Í gær var ársþing FIBA Europe haldið í Munchen í Þýskalandi og bauð Hannes sig fram í stjórn. Hann var einn sjö nýrra sem hlaut kosningu í stjórn sem alls er skipuð tuttugu og þremur einstaklingum. Á Facebooksíðu sinni segir Guðbjörg Norðfjörð, sem var viðstödd ársþingið, að Hannes hafi hlotið góða kosningu. „Virkilega góðar fréttir fyrir okkar litla land og segir okkur að við erum að gera góða hluti. Það sem stendur upp úr fyrir utan góða kosningu Hannesar er að í dag vann lýðræðið þar sem kosningabaráttan var drengileg og gildi samvinnu var í hávegum höfð.“ Spánverjinn Jorge Garbajosa var kjörinn formaður FIBA á þinginu í Munchen en hann er fyrrum leikmaður og lék meðal annars með Toronto Raptors í NBA-deildinni sem og Real Madrid á Spáni. Garbajosa tekur við formennskunni af Tyrkjanum Turgay Demirel sem gegnt hafði embættinu allt frá árinu 2014.
Körfubolti Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Messi hágrét eftir leik Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Fleiri fréttir 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Sjá meira