Axel: Þetta er ólýsanleg tilfinning Siggeir Ævarsson skrifar 18. maí 2023 21:49 Axel Kárason fagnar hér í leikslok. Vísir/Hulda Margrét Axel Kárason hefur marga fjöruna sopið með Tindastól á sínum ferli en líkt og aðrir Skagfirðingar var hann að fagna Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta skipti í kvöld. „
Það er erfitt að lýsa því, þetta er eiginlega eins og svart og hvítt. Við erum búnir að vera með gott lið lengi og flott félag og félagsanda en það er ákveðin lína þarna hvort þú sért búinn að landa titlinum eða ekki. Við erum allavega komnir yfir hana núna. Þetta er ólýsanleg tilfinning,“ sagði Axel í viðtali strax að leik loknum í kvöld. Tindastóll byrjaði leikinn ekki nógu vel og leiddu Valsmenn með þrettán stigum eftir fyrsta leikhlutann. Þeir komu sér þó inn í leikinn á ný og spennan var gríðarleg í seinni hálfleik. „Þetta byrjaði kannski ekki vel sóknarlega hjá okkur og maður hefur minni áhyggjur af því. Ef vörnin er nógu góð, þá getum við unnið okkur aftur inn í leikinn hvernig sem við gerum það. Svo hitta þeir eitthvað, við náum áhlaupi og við setjum þrista og eitthvað svoleiðis,“ bætti Axel við. Axel náði svo ekki að klára viðtalið því hann þurfti að rjúka í bikarafhendingu Tindastóls. „Við þurftum bara að passa að gefast ekki upp, fara aðeins yfir sóknina,“ sagði Axel áður en hann rauk áfram í fagnaðarlæti Tindastóls sem munu eflaust standa langt fram á nótt.
Subway-deild karla Tindastóll Valur Mest lesið „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn