Listamaður lífsins
Aðspurður hvernig hann myndi lýsa sinni listsköpun svarar Snorri:
„Mér hef alltaf fundist það vera einhvers annars að gera það, vegna þess að ég geri bara mitt og er voða lítið að kategoría sjálfan mig. Auðvitað hefur mér oft verið bent á að ég sé nokkurs konar samfélags strúktúr sjálfur.
Allt mitt líf snýst um listina og ég er alltaf í samtali við aðra listamenn og við lífið. Reyndar fékk ég einu sinni ábendingu frá ókunnugum manni í New York að ég væri listamaður lífsins. Allt sem ég geri verður að list og allt sem ég þarf að takast á við í lífinu geri ég í gegnum list. Hvort sem það er tráma, ástarsorg eða hvað eina.“

Snorri verður jafnframt með viðburð í Þjóðleikhúskjallaranum næsta föstudagskvöld klukkan 21:00 sem ber heitið Föstudagskvöld með Snorra Ásmundssyni. „Þar sem ég spila tónlist og tek á móti óvæntum gestum í sófann og tek við þau óhefðbundið viðtöl,“ segir Snorri.

Slakur og lífsglaður en ekki latur
Í fréttatilkynningu frá forsvarsmönnum listasýningarinnar segir:
„Sköpun og gjörðir Snorra verða til þar sem hann stendur og hvíla í honum sjálfum. Þannig er myndsköpun hans ekki skáldskapur eða vel nært „alter egó“. Listamaðurinn er gjörsneyddur leiklistarhæfileikum. Af þessari ástæðu má mögulega halda því fram að Snorri sé stórtækasta lifandi listaverk íslenskrar listasögu.“
Snorri segir magnað að líta yfir farinn veg með þessari yfirlitssýningu.
„Það er svo margt sem ég var búinn að steingleyma. Það eru rúm fimmtán ár síðan vinkona mín sagði við mig að ég væri nú þegar búinn að gera það sem marga listamenn dreymir um allt sitt líf. Ég hef alltaf verið aktífur en stundum hefur mér fundist ég vera of latur, aðallega vegna þess að ég er rólegur, hef gaman að lífinu og er slakur. Ég upplifi mig ekki endilega sem duglegan mann en ég sé það þó núna þegar ég lít yfir farinn veg að ég hef verið duglegur.“
Snorri Ásmundsson var viðmælandi í Vísis seríunni Kúnst í fyrra. Í spilaranum hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni:
Gagnrýnin samfélagsleg gjörningalist
Í fréttatilkynningu kemur einnig fram að Snorri hafi unnið sem andlegur leiðbeinandi, sjáandi yogi, brautryðjandi tímatengdrar listar, jafnvígur í söng og píanóleik, listamaður sem leggur sig sannarlega fram við að brjóta niður það gamla og úrelta, á sama tíma og hann er óþreytandi að benda á nýjar leiðir og það sem koma skal.
„Hver man eftir forsetaframboðinu 2004? Vinstri Hægri Snú framboðinu? Kattaframboðinu? Besta píanóleikara Evrópu? Fjallkonunni? Listasafn Reykjanesbæjar ætlar að ramma inn og færa persónu- og myndsköpun Snorra í ákveðinn farveg sem mun auka skilning almennings á gagnrýninni samfélagslegri gjörningalist á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.

Edrúmennskan lykillinn
Snorri segir lífsgleðina órjúfanlegan hluta af hans lífi.
„Ég er eins og barn á leik og ég er leikglaður að upplagi. Mér finnst alltaf gaman og mér leiðist aldrei. Það sem mér finnst hvað skemmtilegast að gera er að spila píanó og vera besti píanóleikari í Evrópu. Ég elska að mála og svo þykir mér mjög vænt um að hafa fengið það hlutverk að hjálpa fólki með fyrirgefninguna og selja syndaaflausnabréfin. Nánast allt hefur veitt mér gleði og það fylgir því líka að ég er sóber listamaður.“
Í spilaranum hér að neðan má sjá Snorra leika á píanó í bústað sendiherra Íslands í Austurríki:
Snorri segir edrúmennskuna gríðarlega mikilvæga fyrir sér en hann sneri blaðinu við fyrir áratugum síðan.
„Edrúmennskan er lykillinn að minni lífsgleði og því að vera svona aktívur. Ég þekki of marga sem hafa annað hvort verið stoned í 20 ár og ekkert gerist eða bara á barnum og ekkert gerist. Þessi gamli frasi að þú þurfir að vera undir áhrifum til að búa til list er mýta. Frasinn er réttur að því leytinu til að þú vilt vera undir áhrifum lífsins, en ekki undir áhrifum efna. Besta stöffið er að vera sóber. Það er hræðilegt að hafa í gegnum tíðina horft upp á færustu listamennina eyðileggjast.“

Sýningarstjóri Boðflennu er Helga Þórsdóttir og aðstoðarsýningarstjórar eru þær Iðunn Jónsdóttir og Helga Arnbjörg Pálsdóttir. Að lokum vill Snorri skila þakklæti til starfsfólks safnsins og þeirra sem hafa hjálpað við að láta sýninguna verða að veruleika.
„Ég er hamingjusamur og gratitude is my attitude.“