Lífið

Talar minna eftir að gamall draumur rættist

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Auðunn Lúthersson lifir gamlan draum í Los Angeles.
Auðunn Lúthersson lifir gamlan draum í Los Angeles. Vísir/ArnarHalldórs

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúhersson, betur þekktur undirlistamannanafninu Auður, segir gamlan draum hafa ræst þegar hann flutti til Los Angeles nýlega.

„Gamall draumur rættist þegar ég flutti til Los Angeles, stórborg full af sköpunarkrafti. Hér eru kóresk píanóséní, sveittir Chicago rapparar, franskir synþagaldramenn, ástralskar söngdívur og afrískir autotunekóngar. Ég sem er vanur að vinna með fólki frá Breiðholti eða Kópavogi!“ segir Auðunn uppnuminn í færslu á samfélagsmiðlum.

„Á hverju götuhorni er efniviður í bíómynd. Leikkona á leið í myndatöku, hinsegin fólk í nýjustu götutísku og djasssaxófónleikari að harka fyrir utan Whole Foods. Hér eru allir stjörnur og elska sólskinið. Rússar og Úkraínumenn fara á sömu deep house kvöldin í Downtown LA. Suður Amerískir food trucks og geggjaður thaí matur sem er svo sterkur að mild er það eina sem ég höndla. Mannflóran er endalaus.“ 

Rifjar upp spænskuna í Uber ferðum

Auðunn segist hafa miklar áhyggjur af því að vera ófyndnari á ensku og talar því minna og leggur frekar við hlustir.

 „Ekki veitir af,“ skrifar hann.

Þá er hann búinn að læra að heilsa á kóresku og smá í farsí. Auk þess rifjar hann upp spænskuna sem hann lærði sem skiptinemi í Paragvæ þegar hann notar leigubílaþjónustuna Uber.

Huggulegt í LA

„Íbúðin mín er orðin kósý. Ég keypti plakat af Laxness en á eftir að festa það upp á vegg. Hér er sólsetrið fallegt og morgunbirtan full af orku,“ skrifar Auðunn en líkt og myndir gefa til kynna hefur hann komið sér vel fyrir. 

Íbúðin er smekklega innréttuð, búin hljóðfærum og öðrum búnaði sem bendir til þess að hann sé farinn að vinna að nýrri tónlist.


Tengdar fréttir

Jón Jóns­son og Auður gefa út lag sem þeir sömdu ó­vart

Tónlistarmennirnir Jón Jónsson og Auður gáfu í dag út sitt fyrsta lag saman. Lagið ber heitið Ég var ekki þar og var það samið alveg óvart fyrir tólf dögum síðan. Þeim fannst lagið passa vel inn í haustið og ákváðu þeir þess vegna að hafa hraðar hendur við útgáfu þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.