Efling færir margra milljarða verðbréfaeign sína alfarið til Landsbankans

Stéttarfélagið Efling var með samtals nálægt tíu milljarða króna í verðbréfasjóðum og innlánum hjá Landsbankanum um síðustu áramót eftir að hafa ákveðið að losa um allar eignir sínar í öðrum fjármálafyrirtækjum og færa þær alfarið yfir til ríkisbankans. Verðbréfaeign Eflingar lækkaði um 284 milljónir að markaðsvirði á liðnu ári, sem má að stærstum hluta rekja til boðaðra aðgerða fjármálaráðherra um að ÍL-sjóður yrði settur í slitameðferð náist ekki samningar við kröfuhafa um uppgreiðslu skulda hans.