Lífið

Reykjavíkurdóttir gekk út í Túnis

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hjónin voru alsæl á einum af þremur brúðkaupsdögunum.
Hjónin voru alsæl á einum af þremur brúðkaupsdögunum. Instagram

Anna Tara Andrésdóttir, Reykjavíkurdóttir með meiru, er gengin út. Hún gifti sig um helgina í Túnis, sem er heimaland hennar heittelskaða Oussama Achour.

Vinkonur hennar í Reykjavíkurdætrum voru að sjálfsögðu viðstaddar veisluna, líkt og sjá má á Instagram. Um var að ræða veglega veislu á eyjunni Djerba í Túnis sem stóð yfir í þrjá daga.

Steiney Skúladóttir, vinkona hennar og Reykjavíkurdóttir var meðal gesta. Hún var himinlifandi með gleðina, enda sveif ástin yfir vötnum.

Hjónin munu nú skella sér í brúðkaupsferð til Kúbu. Þaðan munu þau svo fara heim á leið þar sem þau búa saman á Spáni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.