Barst fjöldi skilaboða frá karlmönnum vegna brjóstanna Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 28. mars 2023 07:01 Það er óhætt að klæðaburður Sögu Garðars hafi hrist all verulega upp í karlkyns áhorfendum Vikunnar síðasta föstudagskvöld en Sögu bárust fjölda skilaboða eftir þáttinn. Saga Garðarsdóttir leikkona hefur fengið mikil viðbrögð við kjól sem hún klæddist í Vikunni hjá Gísla Marteini á dögunum. Karlmenn voru sérstaklega ánægðir með brjóstasýninguna sem var í gangi, eins og hún kemst að orði. „
Ég var búin að segja við Gísla Martein og Gunnar Nelson; Þið verðið að fylgjast með þessu og láta mig vita. Þannig að þeir voru alltaf að horfa á brjóstin á mér og greinilega öll þjóðin líka,“ segir Saga Garðarsdóttir í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag. Rigndi inn skilaboðum frá ókunnugum karlmönnum „Þannig að eftir þáttinn fékk ég skilaboð frá körlum sem voru gríðarlega ánægðir með þessa brjóstasýningu sem var greinilega í gangi. Mér fannst þetta nú bara hressandi þar sem ég hef aldrei fengið svona skilaboð áður,“ segir Saga kíminn og leynir kaldhæðnin sér ekki. Saga segist hafa beðið bæði Gunnar Nelson og Gísla að fylgjast vel með kjólnum og láta sig vita ef að brjóstin væru við það að poppa út. Skjáskot/RÚV Spurð um skálastærð Saga las upp nokkur skilaboð sem henni bárust eftir þáttinn frá ókunnugum karlmönnum sem fundu sig knúna til þess að senda henni skilaboð til þess eins að deila með Sögu áliti sínu og hrifningu á brjóstum hennar. Flott hjá Gísla Marteini! Flott að þora að sýna bobbana! „Ég var nú mjög ánægð að hann notaði þetta orð yfir brjóstin mín, þar sem þau eru agnarsmá,“ segir Saga kaldhæðin. Einhverjir gátu heldur ekki staðist mátið og forvitnuðust um skálastærð. Hvaða skálastærð ertu? Notar þú brjóstarhaldara með spöngum? Þó að Saga geri vissulega góðlátlegt grín af þessari uppákomu viðurkennir hún þó að hafa fundist þetta hálf óþægilegt eftir á að hyggja. Hún furði sig á því hversu mikil og sterk viðbrögð brjóst kvenna geta vakið, eins eðlileg og saklaus þau séu. Allt eðlilegt hér Eins og áður sagði var Saga gestur í Bakaríinu síðasta laugardag ásamt Snjólaugu Lúðvíksdóttur en þær stöllur hafa verið með uppistandssýninguna Allt eðlilegt hér í Bæjarbíó í að verða ár en aðeins tvær sýningar eru eftir. Í viðtalinu, sem hægt er að að nálgast í heild sinni hér að neðan, ræddu þær Saga og Snjólaug um konur og grín, berskjöldunina í uppistandinu og framtíðarverkefnin. Eins og rokkstjarna eftir góða sýningu Aðspurðar hvaða tilfinningar þær upplifi eftir vel heppnað uppistand segja þær báðar „Þú ert svolítið berskjaldaður á sviðinu því að þú getur ekki kennt neinum öðrum um, það er enginn leikstjóri eða handritshöfundur sem klúðraði ef þetta virkar ekki,“ segir Snjólaug þegar talið berst að hugrekkinu og þorinu sem felst í því að standa á sviði treysta því að áhorfendur springi úr hlátri. „Á sama tíma eru verðlaunin líka rosaleg,“ bætir Snjólaug við og tekur Saga í sama streng. Maður verður smá svona eins og rokkstjarna eftir sýningu. Snorri talar um það þegar ég kem heim og það hefur gengið vel að ég sé svona „dick swinging“. Kem heim og er eitthvað;Jæja Snorri, finnst þér ekki gaman að vera maðurinn minn? Snjólaug og Saga Garðars halda nú lokasýningar á uppistandsýningunni Allt eðlilegt hér í Bæjarbíói næstu helgi. Morgunþátturinn Bakaríið er á dagskrá alla laugardaga frá 9 - 12 á Bylgjunni. Hægt er að nálgast síðasta þátt í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Bakaríið Bylgjan Grín og gaman Leikhús Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir Besti tíminn til að forplanta vorlaukum og klippa trén Þó svo að engin sérstök vorstemmning sé yfir hitastiginu á landinu þessa dagana er þó ekki þar með sagt að vorverkin þurfi að bíða. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að klæða sig vel, setja upp vinnuhanskana og vinda sér út í garð með klippurnar að vopni. 24. mars 2023 11:50 Íhugar að setja mömmu sína á launaskrá „Nú fer hún að hætta í bankanum og þá þarf maður kannski bara að fara að setja hana á launaskrá. Svona fyrir að fylgjast með öllu og jafnvel „covera“ smá heima á vaktinni,“ segir Frikki Dór kíminn í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag. 23. mars 2023 13:00 Enginn pilsner í pylsusoðinu hjá Bæjarins bestu „Þetta með Pilsnerinn, ég er búin að heyra þetta í svona þrjátíu ár og ég veit ekki hvaðan þessi saga kemur en hún er mjög lífsseig,“ segir Guðrún Björk Kristmundsdóttir eigandi Bæjarins bestu í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag. 23. mars 2023 14:50 Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Fleiri fréttir Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Sjá meira
Besti tíminn til að forplanta vorlaukum og klippa trén Þó svo að engin sérstök vorstemmning sé yfir hitastiginu á landinu þessa dagana er þó ekki þar með sagt að vorverkin þurfi að bíða. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að klæða sig vel, setja upp vinnuhanskana og vinda sér út í garð með klippurnar að vopni. 24. mars 2023 11:50
Íhugar að setja mömmu sína á launaskrá „Nú fer hún að hætta í bankanum og þá þarf maður kannski bara að fara að setja hana á launaskrá. Svona fyrir að fylgjast með öllu og jafnvel „covera“ smá heima á vaktinni,“ segir Frikki Dór kíminn í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag. 23. mars 2023 13:00
Enginn pilsner í pylsusoðinu hjá Bæjarins bestu „Þetta með Pilsnerinn, ég er búin að heyra þetta í svona þrjátíu ár og ég veit ekki hvaðan þessi saga kemur en hún er mjög lífsseig,“ segir Guðrún Björk Kristmundsdóttir eigandi Bæjarins bestu í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag. 23. mars 2023 14:50