Hlynur fyrstur til að spila með A-landsliðinu eftir fertugt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2023 14:01 Hlynur Bæringsson í leiknum sögulega á móti Spáni í gær. Vísir/Hulda Margrét Hlynur Bæringsson sló met Alexanders Ermolinskij í Laugardalshöllinni í gærkvöldi þegar hann snéri aftur í karlalandsliðið í körfubolta. Hlynur er nú elsti leikmaður karlalandsliðsins í körfubolta frá upphafi. Hlynur var 40 ára, 7 mánaða og 17 daga í leiknum í dag og sló þar með gamla metið um rúmlega þrjú ár. Það var vel við hæfi að Hlynur hafi slegið metið á móti heims og Evrópumeisturum Spánar. Alexander Ermolinskij lék sex leiki með íslenska karlalandsliðinu sumarið 1997 eftir að hann fékk íslenskan ríkisborgararétt. Síðasti leikur hans var á móti Lúxemborg 7. júní 1997 en þá var Alexander 37 ára, 6 mánaða og 27 daga. Þegar Hlynur lék sinn síðasta landsleik, á undan þessum, 21. ágúst 2019 þá var hann 37 ára, 1 mánaða og 16 daga. Hann var því farinn að nálgast metið þá. Logi Gunnarsson var 36 ára, 7 mánaða og 21 dags þegar hann lék sinn síðasta landsleik árið 2018 og Jón Arnór Stefánsson var 36 ára, 5 mánaða og 1 dags þegar hann lék sinn síðasta landsleik árið 2019. Leikurnn í gær þýðir jafnframt að landsliðsferill Hlyns spannar úr orðið 23 ár en hann lék sinn fyrsta A-landsleik á móti Makedóníu 23. febrúar árið 2000. Birgir Örn Birgis átti um tíma bæði aldursmetið (33 ára, 4 mánaða, 16 daga) og lengsta landsliðsferilinn (16 ár, 8 mánaða og 23 daga), en Einar Bollason (34 ára, 2 mánaða, 17 daga) tók aldursmetið af honum. Alexander hafði síðan átt metið í rúmar aldarfjórðung áður en Hlynur sló metið í gærkvöldi. Elstu landsliðsmennirnir: 40 ára, 7 mánaða og 17 daga Hlynur Bæringsson 37 ára, 6 mánaða og 27 daga Alexander Ermolinskij 36 ára, 7 mánaða og 21 dags Logi Gunnarsson 36 ára, 5 mánaða og 1 dags Jón Arnór Stefánsson 36 ára, 1 mánaða og 18 daga Guðmundur Bragason 35 ára, 10 mánaða og 22 daga Jakob Örn Sigurðarson 35 ára, 1 mánaða og 3 daga Pavel Ermolinskij Landslið karla í körfubolta HM 2023 í körfubolta Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira
Hlynur er nú elsti leikmaður karlalandsliðsins í körfubolta frá upphafi. Hlynur var 40 ára, 7 mánaða og 17 daga í leiknum í dag og sló þar með gamla metið um rúmlega þrjú ár. Það var vel við hæfi að Hlynur hafi slegið metið á móti heims og Evrópumeisturum Spánar. Alexander Ermolinskij lék sex leiki með íslenska karlalandsliðinu sumarið 1997 eftir að hann fékk íslenskan ríkisborgararétt. Síðasti leikur hans var á móti Lúxemborg 7. júní 1997 en þá var Alexander 37 ára, 6 mánaða og 27 daga. Þegar Hlynur lék sinn síðasta landsleik, á undan þessum, 21. ágúst 2019 þá var hann 37 ára, 1 mánaða og 16 daga. Hann var því farinn að nálgast metið þá. Logi Gunnarsson var 36 ára, 7 mánaða og 21 dags þegar hann lék sinn síðasta landsleik árið 2018 og Jón Arnór Stefánsson var 36 ára, 5 mánaða og 1 dags þegar hann lék sinn síðasta landsleik árið 2019. Leikurnn í gær þýðir jafnframt að landsliðsferill Hlyns spannar úr orðið 23 ár en hann lék sinn fyrsta A-landsleik á móti Makedóníu 23. febrúar árið 2000. Birgir Örn Birgis átti um tíma bæði aldursmetið (33 ára, 4 mánaða, 16 daga) og lengsta landsliðsferilinn (16 ár, 8 mánaða og 23 daga), en Einar Bollason (34 ára, 2 mánaða, 17 daga) tók aldursmetið af honum. Alexander hafði síðan átt metið í rúmar aldarfjórðung áður en Hlynur sló metið í gærkvöldi. Elstu landsliðsmennirnir: 40 ára, 7 mánaða og 17 daga Hlynur Bæringsson 37 ára, 6 mánaða og 27 daga Alexander Ermolinskij 36 ára, 7 mánaða og 21 dags Logi Gunnarsson 36 ára, 5 mánaða og 1 dags Jón Arnór Stefánsson 36 ára, 1 mánaða og 18 daga Guðmundur Bragason 35 ára, 10 mánaða og 22 daga Jakob Örn Sigurðarson 35 ára, 1 mánaða og 3 daga Pavel Ermolinskij
Elstu landsliðsmennirnir: 40 ára, 7 mánaða og 17 daga Hlynur Bæringsson 37 ára, 6 mánaða og 27 daga Alexander Ermolinskij 36 ára, 7 mánaða og 21 dags Logi Gunnarsson 36 ára, 5 mánaða og 1 dags Jón Arnór Stefánsson 36 ára, 1 mánaða og 18 daga Guðmundur Bragason 35 ára, 10 mánaða og 22 daga Jakob Örn Sigurðarson 35 ára, 1 mánaða og 3 daga Pavel Ermolinskij
Landslið karla í körfubolta HM 2023 í körfubolta Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira