Lífið

Geggjuð íbúð og enn flottari svalir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnar og Brynja hafa heldur betur komið sér vel fyrir á Njálsgötunni.
Arnar og Brynja hafa heldur betur komið sér vel fyrir á Njálsgötunni.

Arnar Már Davíðsson, eigandi Ketchup sem er bæði framleiðslufyrirtæki og auglýsingastofa, tók fallega íbúð í gegn við Njálsgötu í miðborg Reykjavíkur ásamt unnustu sinni Brynju Kúlu Guðmundsdóttur.

Sindri Sindrason skellti sér í heimsókn til Arnars og mátti sjá afraksturinn í síðasta þætti af Heimsókn á Stöð 2 í gærkvöldi.

Eignin var áður alfarið í útleigu á AirBnB og því þurfti parið að taka til hendinni þegar hún var keypt. 

Allt var endurnýjað og er útkoman einstaklega falleg. Það sem gerir íbúðina einstaka eru svalir uppi á þaki hússins og það verður að segja að svalirnar eru ólíkari en allar aðrar.

Klippa: Geggjuð íbúð og enn flottari svalir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.