Lífið

Bein útsending í sólarhring: Rósa Björk fær stjörnur í heimsókn

Máni Snær Þorláksson skrifar
Rósa Björk mun vera í beinni útsendingu næsta sólarhringinn.
Rósa Björk mun vera í beinni útsendingu næsta sólarhringinn.

Tölvuleikjaspilarinn Rósa Björk stendur fyrir sólarhringslöngu góðgerðarstreymi sem hefst klukkan 15:00 í dag. Allur ágóði streymisins mun renna til Píeta samtakanna. Hægt verður að fylgjast með streyminu í beinni útsendingu hér á Vísi.

Þetta er í annað sinn sem Rósa Björk, sem gengur undir nafninu g00nhunter á tölvuleikjastreymisveitunni Twitch, stendur fyrir slíku streymi til styrktar samtakanna. Í fyrra söfnuðust 1,4 milljónir króna en Rósa Björk stefnir á að safna enn meiru í ár.

Það er óhætt að segja að dagskrá streymisins í ár sé stútfull. Þjóðþekktir einstaklingar munu kíkja í streymið til Rósu Bjarkar og taka áskorunum. Herra Hnetusmjör, Birgir Hákon, Flóni og Friðrik Dór verða meðal gesta. Sá síðastnefndi mun einmitt taka áskorun með Rósu og borða ógeðslegan mat með bundið fyrir augun.

Hægt er að fylgjast með streyminu í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan:

Ýmsir vinningar verða gefnir á meðan á streyminu stendur. Flugfélagið Play gefur til dæmis tvo flugmiða og Bleksmiðjan gefur gjafabréf.

Þrátt fyrir að viðburður sem þessi séu yfirleitt ætlaðir áhugafólki um tölvuleiki þá er streymið í ár sniðið að fjöldanum. „Í ár þá langar okkur að gera þetta miklu stærra og flottara þannig við ætlum að hafa þetta svolítið fyrir alla og ég mun spila tölvuleiki miklu minna,“ segir Rósa.


Tengdar fréttir

Endurtekur leikinn fyrir Píeta: „Í ár stefnum við bara enn hærra“

Tölvuleikjaspilarinn Rósa Björk stendur fyrir góðgerðarstreymi í sólarhring til styrktar Píeta samtakanna á morgun. Í fyrra safnaði hún 1,4 milljónum króna og stefnir enn hærra í ár með stútfullri dagskrá. Hún segir Píeta eiga sérstakan stað í hjarta hennar og stefnir á að þetta verði árlegur viðburður. 

Afhenti Píeta samtökunum 1,4 milljónir króna: „Hefði ekki getað beðið um neitt betra“

Hin 22 ára Rósa Björk Einarsdóttir afhenti í dag Píeta-samtökunum 1,4 milljónir króna sem söfnuðust við góðgerðarstreymi hennar á Twitch, streymisveitu sem sérhæfir sig í útsendingu rafíþrótta, í lok janúar. Streymið stóð yfir í sólarhring og var til heiðurs bróður hennar sem féll fyrir eigin hendi árið 2007, 33 ára að aldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.