Jökull fenginn á neyðarláni vegna meiðsla en leiknum frestað Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 24. janúar 2023 18:30 Jökull Andrésson er mættur til Exeter í þriðja sinn á ferlinum, í þetta sinn á sjö daga neyðarláni. Harry Trump/Getty Images Markvörðurinn Jökull Andrésson skrifaði í dag undir sjö daga lánssamning við enska C-deildarliðið Exeter City. Jökull átti að bjarga Exeter út úr meiðslavandræðum, en leik liðsins sem átti að fara fram í kvöld hefur verið frestað.
Exeter og Barnsley áttu að mætast í ensku C-deildinni síðar í kvöld í mikilvægum leik fyrir bæði lið í baráttunni um umspilssæti um laust sæti í ensku B-deildinni. Hins vegar hefur níu leikjum í neðri deildum Englands sem áttu að fara fram í kvöld verið frestað vegna þess að vellirnir eru frosnir. Leikur Exeter og Barnsley er meðal þeirra níu leikja sem var frestað eftir að völlurinn var skoðaður og metinn fyrir skemmstu. Ohhhh go on, one more time then!! https://t.co/giU6Z7Sbza— Jökull Andrésson (@JokullAndresson) January 24, 2023 Eins og áður segir var Jökull fenginn á láni í aðeins sjö daga, en ekki hefur verið ákveðin ný dagsetning fyrir leikinn sem átti að fara fram í kvöld. Exeter sækir þó MK Dons heim næstkomandi laugardag og spurning hvort Jökull fái að spreyta sig í þeim leik. Jökull er samningsbundinn Reading sem leikur í ensku B-deildinni. Hann hefur verið á mála hjá liðinu síðan árið 2018, en hefur ekki enn spilað leik fyrir aðallið félagsins. Þetta er hins vegar í þriðja skipti sem hann fer á láni til Exeter, en það gerði hann einnig árin 2020 og 2021. Alls hefur hann leikið 32 leiki fyrir Exeter og haldið hreinu í ellefu þeirra.
Enski boltinn Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Sport Markvörður Eista meiddur Fótbolti Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira