Keppnin í ár verður æsispennandi Meistaradeild Líflands 23. janúar 2023 09:48 Á fimmtudaginn munu knapar tefla fram sínum allra bestu hestum þegar Meistaradeild Líflands í hestíþróttum hefst. Fyrsta mót af sex í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fer fram fimmtudaginn 26. janúar, í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Á fimmtudaginn næsta munu knapar tefla fram sínum allra bestu hestum í fjórgangi en í fyrra voru það Sigurður Sigurðarson og Leikur frá Vesturkoti sem stóðu uppi sem sigurvegarar og verður spennandi að sjá hvort þeir mæti aftur til leiks til að verja titilinn. Sigurður Sigurðarson og Leikur frá Vesturkoti sigruðu fjórganginn í fyrra. Í Meistaradeild Líflands eru 8 lið sem tefla fram 3 knöpum af 5 á hverju keppniskvöldi, keppnirnar eru 8 talsins og er ávallt mikil barátta í bæði einstaklings- og liðakeppni. Í fyrra var það lið Top Reiter sem sigraði liðakeppnina og knapi þeirra Árni Björn Pálsson sem sigraði einnig einstaklingskeppnina, eftir harða baráttu fram á síðasta mót. Klippa: Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Keppnin er ein sú allra vinsælasta meðal hestamanna, keppnin er send út um allan heim í beinni útsendingu og á þremur tungumálum, íslensku, ensku og þýsku. Af gefinni reynslu síðustu ára þá fylgjast 5 – 15 þúsund áhorfendur með hverju keppniskvöldi. Lið Top Reiters sigraði liðakeppnina í fyrra. Konráð valur Sveinsson, Hanna Rún Ingibergsdóttir, Eyrún Ýr Pálsdóttir, Teitur Árnason og Árni Björn Pálsson Öll keppniskvöld Meistaradeildar Líflands verða aðgengileg á streymisveitu Alendis TV og einnig verður boðið upp á ýmis konar aukaefni tengd deildinni, hægt verður að kaupa áskrift hér. Kaupendur fá þá aðgang að öllu því efni sem Alendis TV hefur tekið upp og sýnt síðustu árin. Árni Björn Pálson sigraði 3 keppnir og stóð uppi sem sigurvegari í einstaklingskeppninni. Hér er hann á Kötlu frá Hemlu II. Gaman er að segja frá því að Íslensk Verðbréf munu bjóða öllum þeim sem vilja mæta í HorseDay höllina 26. janúar frítt inn, mælt er með að áhorfendur mæti tímanlega til að fá góð sæti. Í vetur verður lögð mikil áhersla á að taka vel á móti gestum í HorseDay höllinni og boðið verður upp á gott og fjölbreytt úrval af veitingum, fyrir keppni og í hléi. Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi sigruðu töltið í fyrra. Dagskrá vetrarins: 26. janúar - Fjórgangur - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 9. febrúar - Slaktaumatölt - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 3. mars - Fimmgangur - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 23. mars - Gæðingafimi - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 8. apríl - Gæðingaskeið og 150m skeið - 14:00 Selfoss Brávöllum 15. apríl - Tölt og 100 m skeið - 19:00 HorseDay-Höllin Ingólfshvoli - Lokahátið Hestar Hestaíþróttir Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira
26. janúar - Fjórgangur - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 9. febrúar - Slaktaumatölt - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 3. mars - Fimmgangur - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 23. mars - Gæðingafimi - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli 8. apríl - Gæðingaskeið og 150m skeið - 14:00 Selfoss Brávöllum 15. apríl - Tölt og 100 m skeið - 19:00 HorseDay-Höllin Ingólfshvoli - Lokahátið
Hestar Hestaíþróttir Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira