Haller klár í að snúa aftur til keppni eftir krabbameinsmeðferðina Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 21. janúar 2023 08:01 Sebastien Haller er klár í slaginn eftir að hafa gengið í gegnum krabbameinsmeðferð. Marco Donato/Borussia Dortmund via Getty Images Sebastien Haller, framherja þýska úrvalsdeildarfélagsins Borussia Dortmund, gæti snúið aftur til keppni á nýjan leik á morgun eftir að hafa gengið í gegnum krabbameinsmeðferð.
Haller verður í leikmannahóp Dortmund er liðið mætir Augsburg í þýsku deildinni á morgun, en þjálfari liðsins, Edin Terzic, á enn eftir að ákveða hversu stórt hlutverk leikmaðurinn mun leika. Haller hefur gengist undir skurðaðgerðir og í gegnum geislameðferð til að vinna bug á krabbameini sem hann greindist með í eista. Hann snéri nýverið aftur til æfinga og kom á dögunum inn af varamannabekknum í æfingaleik hjá Dortmund. „Hann ber sig mjög vel. Þetta er búinn að vera langur tími sem hann hefur verið í burtu,“ sagði Terzic á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Augsburg. „Við erum öll mjög stolt af honum og því hvernig hann barðist í gegnum þetta ferli. Við erum ótrúlega ánægðir með að hann sé loks til taks. Við sjáum til hvort hann muni byrja leikinn.“ Haller greindist með krabbamein í eista í júlí á síðasta ári, stuttu eftir að hann gekk í raðir Dortmund frá Ajax. Eins og áður segir snéri Haller aftur á völlinn í afingaleik á dögunum þegar hann kom inn af varamannabekknum á 73. mínútu í 5-1 sigri gegn Fortuna Dusseldorf.
Þýski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Enski boltinn Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Handbolti Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Íslenski boltinn Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Í beinni: Fram - Þór/KA | Framarar geta unnið þriðja leikinn í röð Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Áhorfandi hljóp inn á og réðist á fyrrverandi leikmann Vals Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó