Lífið

Arnar Grant snúinn aftur

Eiður Þór Árnason skrifar
Einkaþjálfarinn Arnar Grant.
Einkaþjálfarinn Arnar Grant. Stöð 2

Arnar Grant hefur hafið störf sem einkaþjálfari hjá líkamsræktarstöðinni Pumping Iron. Verktakasamningi hans hjá World Class var sagt upp á seinasta ári eftir að Ari Edwald, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson kærðu Arnar og Vítalíu Lazarevu til héraðssaksóknara fyrir tilraun til fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífsins. Þau hafa bæði hafnað ásökununum.

Fyrir það hafði Arnar verið sendur í tímabundið leyfi hjá World Class eftir að Vítalía steig fram og lýsti leynilegu ástarsambandi þeirra og kynferðisofbeldi sem hún sagði Ara, Hreggvið og Þórð hafa beitt sig í sumarbústaðaferð í september 2020. Hún hefur kært þremenningana til lögreglu vegna þessa.

Björn Leifsson, eigandi World Class sagði í samtali við Vísi í júní síðastliðnum að verktakasamningnum hafi verið sagt endanlega upp eftir að upplýsingar komu fram um kæru þremenninganna. Það væri regla hjá World Class að hafa fólk ekki í vinnu sem væri með kæru í ferli.

Instagram

Arnar greinir frá nýjum vinnustað sínum á Instagram-síðu sinni með orðunum: „Fyrir þá sem eru að leita að mér geta [þeir] fundið mig hér.“

Örlagarík sumarbústaðaferð

Mál Vitalíu komst fyrst í kastljós fjölmiðla fyrir um ári eftir að viðtal Eddu Falak við Vítalíu í hlaðvarpinu Eigin konur var birt. Þar greindi Vítalía frá því að hún hefði orðið fyrir ofbeldi af hendi þriggja eldri karlmanna í sumarbústaðarferð, sem hún mætti í til að hitta þáverandi ástmann sinn, Arnar Grant.

Í kjölfarið var greint frá því að Ari Edwald, þáverandi framkvæmdastjóri Ísey útflutnings, hefði stigið til hliðar úr stjórn fyrirtækisins. Sama dag steig Hreggviður Jónsson, þá stjórnarformaður og aðaleigandi Veritas Capital, úr stjórn þess og stjórnum tengdra fyrirtækja. Hreggviður sagði í yfirlýsingu sem hann sendi út að hann harmaði að hafa ekki stigið úr aðstæðunum sem Vítalía lýsti og honum þætti þungbært að heyra um hennar reynslu. Hann teldi sig þó ekki hafa gerst brotlegan við lög. Þórður Már sagði sig sömuleðis samdægurs úr stjórn Festar vegna ásakananna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.