Sveindís skoraði og lagði upp í sigri Wolfsburg Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. desember 2022 20:16 Sveindís Jane Jónsdóttir átti frábæra innkomu fyrir Wolfsburg í kvöld. Getty/Cathrin Mueller Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir átti frábæra innkomu fyrir Wolfsburg er liðið vann 4-2 sigur gegn Roma í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld.
Sveindís kom inn af varamannabekknum strax á 12. mínútu leiksins fyrir Jill Roord sem þurfti frá að hverfa. Rétt rúmum tíu mínútum síðar lagði hún upp fyrsta mark liðsins fyrir Ewa Pajor og um fimm mínútum fyrir hálfleikshléið bætti hún sjálf við örðu marki liðsins. Gestirnir í Roma minnkuðu þó muninn stuttu fyrir hálfleikinn og staðan því 2-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Heimakonur í Wolfsburg bættu þó tveimur mörkum við snemma í síðari hálfleik áður en gestirnir klóruðu í bakkann þegar um stundarfjórðungur lifði leiks. Niðurstaðan því 4-2 sigur Wolfsburg sem trónir á toppi B-riðils með tíu stig eftir fjóra leiki, þremur stigum meira en Roma sem situr í öðru sæti. Þá vann Paris Saint-Germain öruggan 4-0 sigur gegn Vllaznia í A-riðli á sama tíma. PSG situr í öðru sæti riðilsins með sjö stig, en Berglind Björg Þorvaldsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Parísarliðsins.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Sjá meira